Bláskógaskóli Laugarvatni
Bláskógaskóli Laugarvatni
Bláskógaskóli Laugarvatni

Umsjónarkennarar óskast

Bláskógaskóli á Laugarvatni er grunnskóli með um 60 nemendur í 1.–10. bekk. Skólinn er Grænfánaskóli og byggir starf sitt á einkunnarorðunum virðing – vinátta – gleði, sem endurspeglast í öllu skólastarfi og samskiptum innan skólasamfélagsins.

Í skólanum er unnið með samkennslu árganga í litlum hópum þar sem áhersla er lögð á samstarf, sveigjanleika og fjölbreytta kennsluhætti.

Við leitum að metnaðarfullum og framsæknum umsjónarkennurum í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2026, sem vilja starfa í litlu og samhentu skólasamfélagi þar sem fagmennska, teymisvinna og vellíðan nemenda eru í fyrirrúmi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með nemendahópi og ábyrgð á námi og velferð þeirra
  • Undirbúningur og framkvæmd kennslu
  • Mat á námi nemenda og eftirfylgni
  • Samskipti og samstarf við foreldra og fagfólk
  • Þátttaka í teymisvinnu og þróun skólastarfs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari
  • Kennslureynsla er kostur
  • Reynsla af umsjónarkennslu og teymisvinnu er æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til teymisvinnu
  • Lausnamiðuð vinnubrögð og faglegur metnaður
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Frítt kort í sund og líkamsrækt hjá Bláskógabyggð.
Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur1. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Lindarbraut 6, 840 Laugarvatni
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar