Smáraskóli
Smáraskóli
Smáraskóli

Dönskukennari í Smáraskóla

Smáraskóli leitar að dönskukennara á unglingastigi frá skólaárinu 2026 - 2027. Um er að ræða fulla stöðu.

Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur og 80 starfsmenn. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar, skólinn er heilsueflandi grunnskóli og verið er að vinna að því að Smárskóli verði réttindaskóli UNICEF.

Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda og er teymiskennsla það fyrirkomulag sem lagt er til grundvallar. Allir kennarar ásamt nemendum í 5. – 10. bekk eru með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.

Smáraskóli er staðsettur í fallegu umhverfi í Kópavogsdalnum og miklir möguleikar eru til hreyfingar, útivistar og útikennslu í nágrenni skólans.

Menntun og mannrækt er leiðarljós í starfi Smáraskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dönskukennsla á unglingastigi.
  • Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda.
  • Samstarf innan skólans að faglegum málefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Reynsla af dönskukennslu er kostur.
  • Einlægur áhugi á að vinna með börnum.
  • Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalsmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar