

Frístundaráðgjafi óskast í félagsmiðstöðina Bólið - umsjón með miðstigsstarfi
Langar þig að leiða uppbyggilegt og skapandi starf með börnum á miðstigi þar sem virðing, gleði og jákvæð samskipti eru leiðarljós í öllu starfi?
Þá gæti þetta starf í Bólinu í Mosfellsbæ verið fyrir þig.
Í Bólinu trúum við því að öflugt frístundastarf skipti máli. Við vinnum markvisst að því að skapa öruggt rými þar sem börn og ungmenni upplifa sig velkomin, fá tækifæri til að njóta sín og efla félagsfærni, sjálfstraust og þátttöku í samfélaginu. Grunnurinn að öllu okkar starfi er virðing – fyrir einstaklingnum, hugmyndum hans og fjölbreytileikanum í samfélaginu okkar.
Við leitum nú að frístundaráðgjafa sem tekur að sér umsjón með miðstigsstarfi Bólsins og leiðir áfram þróun þess með metnaði, hlýju og fagmennsku.
Um er að ræða um 50% starfshlutfall, með möguleika á hærra starfshlutfalli með þátttöku í starfi með unglingum.
Vinnutími er að mestu eftir hádegi, með 2–3 seinnipörtum í viku.
Af hverju að vinna í Bólinu?
- Virðing er grunnurinn að öllu okkar starfi
- Tækifæri til að leiða og þróa mikilvægt starf fyrir miðstigið
- Skapandi og fjölbreytt starf þar sem hugmyndir fá að verða að veruleika
- Sterk liðsheild og góður starfsandi
- Möguleiki á auknu starfshlutfalli með fjölbreyttum verkefnum
- Gefandi starf þar sem þú sérð árangur í vexti og vellíðan barna og ungmenna
Helstu verkefni:
- Umsjón með og þróun miðstigsstarfs félagsmiðstöðvarinnar
- Skipulagning og framkvæmd dagskrár, viðburða og verkefna
- Að byggja upp jákvætt, öruggt og hvetjandi félagslegt umhverfi
- Samskipti og samstarf við skóla, foreldra og samstarfsaðila
- Þátttaka í almennu starfi félagsmiðstöðvarinnar
- Möguleg þátttaka í starfi með unglingum samhliða, eftir starfshlutfalli
Við leitum að einstaklingi sem:
- Hefur áhuga og reynslu af starfi með börnum og/eða ungmennum
- Hefur leiðtogahæfni og getur unnið sjálfstætt
- Er jákvæður, skipulagður og lausnamiðaður
- Trúir á mikilvægi virðingar, tengslamyndunar og þátttöku
- Býr yfir góðri samskiptahæfni og á auðvelt með samstarf
- Hefur metnað fyrir öflugu félagsmiðstöðvarstarfi
Vertu hluti af Bólinu
Ef þú vilt starfa á vinnustað þar sem mannleg tengsl skipta máli og þar sem þú færð tækifæri til að leiða uppbyggilegt starf sem hefur áhrif – þá viljum við heyra frá þér.
Íslenska










