Mosfellsbær
Mosfellsbær
Mosfellsbær

Verkefnastjóri Eignasjóðs

Umhverfissvið Mosfellsbæjar leitar að öflugum og launsamiðuðum verkefnastjóra Eignasjóðs, sem býr yfir þekkingu og farsælli reynslu af utanumhaldi verkefna vegna nýframkvæmda og endurbóta.

Verkefnastjóri annast undirbúning, útboð og umsjón framkvæmda á mannvirkjum bæjarfélagsins, og ber ábyrgð á að þær séu innan heimilda gildandi fjárhagsáætlunar. Verkefnastjóri hefur yfirsýn yfir, og eftirlit með, fjárhagslegri stöðu og framvindu verkefna. Verkefnastjóri skal sýna nákvæmni í hvívetna, og búa yfir ríkri samstarfs- og samskiptahæfni. Viðkomandi mun taka þátt í ítrun á faglegu verklagi og vinnubrögðum.

Eignasjóður fer með eigendaforsvar fyrir hönd sveitarfélagsins á öllum fasteignum og samgönguinnviðum, og sér um viðhald, endurbætur og nýframkvæmdir í samræmi við fjárfestingaáætlanir og samþykktir bæjarráðs. Æskilegt er að umsækjandi hafi þekkingu og reynslu af greiningu og framsetningu upplýsinga á skýran hátt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastýring nýframkvæmda og viðhaldsverkefna. 
  • Þarfa- og kostnaðargreiningar, og kostnaðar- og tímaáætlanir verkefna. 
  • Virkt aðhald og eftirlit með framkvæmd verkefna. 
  • Yfirferð og samþykkt reikninga frá ráðgjöfum, þjónustuaðilum og verktökum.  
  • Kostnaðargát, eftirfylgni, úttektir, uppgjör, skjölun og gerð skilamata verkefna. 
  • Umsjón með útboðsferli og samningum vegna framkvæmdaverkefna. 
  • Samskipti, ráðgjöf og upplýsingamiðlun til hagaðila vegna verkefna. 
  • Önnur tilfallandi verkefni að beiðni næsta yfirmanns. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í verk- eða tæknigreinum, byggingarfræði, verkfræði eða annað sambærilegt nám sem nýtist í starfi. 
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi kostur. 
  • Menntun, vottun eða farsæl reynsla í verkefnastjórnun stór kostur. 
  • Reynsla og þekking á útboðs- og innkaupamálum kostur. 
  • Gott vald á upplýsingatækni og framsetningu gagna æskileg. 
  • Gott vald á aðferðum og tólum til verkefnastjórnunar æskilegt, þekking af eignaumsýslukerfum kostur. 
  • Þekking eða reynsla af opinberri stjórnsýslu kostur. 
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagsfærni og öguð vinnubrögð. 
  • Rík samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum. 
  • Jákvæðni og lausnamiðuð hugsun. 
  • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli er skilyrði, færni í erlendum tungumálum kostur. 
Auglýsing birt18. maí 2026
Umsóknarfrestur1. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar