

Ert þú lögfræðingurinn sem við leitum að?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að lögfræðingi á sviði loftslagsmála sem hefur brennandi áhuga á að starfa í efstu stjórnsýslu landsins við að móta framtíð loftslagsmála.
Um er að ræða fjölbreytt verkefni í loftslagsmálum í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu og skipulögð vinnubrögð.
Staðan er á skrifstofu loftslagsmála sem hefur það megin markmið að fylgja eftir loftslagsstefnu stjórnvalda. Megin áherslur eru að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og vinna að aðlögun íslensks samfélags að loftslagsbreytingum. Verkefnin snúa að því að halda utan um stefnumótun og löggjöf sem varðar loftslagsmál, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og aðlögunaráætlun vegna loftslagsbreytinga. Þá er útfærsla og framkvæmd alþjóðasamninga á sviði loftslagsmála og Evrópulöggjöf í brennidepli. Auk þess sinnir skrifstofan málefnum vegna loftmengunar, veðurþjónustu, loftslagsþjónustu, og vöktun náttúruvár sem fellur ekki undir starfssvið Ofanflóðanefndar.
Lögfræðingur á sviði loftslagsmála sinnir afgreiðslu mála á skrifstofunni, stjórnsýslu, alþjóðlegu samstarfi, vinnu að stefnumótun, eftirfylgni og ráðgjöf. Lögfræðingur leiðir og tekur þátt í vinnslu frumvarpa og reglugerða, auk þess að sinna stjórnsýslu sem snýr að lögfræðilegum erindum eða álitamálum, sem og kærum og úrskurðum. Þá tekur lögfræðingurinn þátt í upptöku Evrópuregluverks og skipuleggur innleiðingu þess í íslenskan rétt. Starfið felur einnig í sér samstarf innan ráðuneytisins, við önnur ráðuneyti, stofnanir og ýmsa hagaðila.
-
Kandídats- eða meistarapróf í lögfræði
-
Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur
-
Þekking eða reynsla á sviði EES-samningsins og alþjóðlegu laga og regluverki á sviði loftslagsmála er kostur
-
Góð stafræn færni
-
Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
-
Lausnamiðuð hugsun og geta til vinna undir álagi
-
Mjög góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar og geta til að vinna í teymi.
-
Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
-
Mjög góð kunnátta í ensku
Íslenska
Enska







