
Valhöll fasteignasala
Valhöll er rótgróin fasteignasala á íslenskum fasteignamarkaði. Um er að ræða öflugann og framsækinn vinnustaður þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, jákvætt starfsumhverfi og sterka liðsheild. Hjá fyrirtækinu starfar metnaðarfullt teymi sem vinnur náið saman í góðu og stuðningsríku umhverfi. Fyrirtækið hefur byggt upp sterka menningu þar sem traust, samvinna og góður starfsandi eru í fyrirrúmi.

Löggiltur fasteignasali
Valhöll leitar að skipulögðum, nákvæmum, lausnamiðuðum og þjónustulunduðum starfsmanni í fullt starf til starfa við samningagerð og skjalafrágang á öflugri fasteignasölu. Starfið hentar einstaklingi sem hefur góða yfirsýn, vinnur vel undir álagi og hefur áhuga á fasteignaviðskiptum og vönduðum vinnubrögðum. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf í góðu starfsumhverfi með miklum tekjumöguleikum fyrir metnaðargjarna einstaklinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð kauptilboða, kaupsamninga, afsala og annarra skjala vegna fasteignaviðskipta.
- Samskipti við kaupendur, seljendur, banka, sýslumenn og aðra samstarfsaðila.
- Almenn skrifstofu- og stoðþjónusta við eigendur og fasteignasala Valhallar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilding fasteignasala.
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Menntun sem nýtist í starfi t.d. lögfræði eða viðskiptafræði er kostur.
- Reynsla af samningagerð og skjalavinnu er kostur.
- Sjálfstæð, öguð og nákvæm vinnubrögð.
Auglýsing birt20. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Síðumúli 27, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiNákvæmniSamningagerðSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)





