

Business Central ráðgjafi með þekkingu á tollamálum
Við leitum að drífandi og lausnamiðuðum ráðgjafa sem vill taka virkan þátt í umbreytingu fyrirtækja með Microsoft Dynamics 365 Business Central í skýinu. Hjá okkur færðu að vinna með nýjustu lausnir Microsoft, þar á meðal Copilot, gervigreindarvirkni og tækni sem er stöðugt að þróast.
Við leitum sérstaklega að einstaklingi sem hefur þekkingu á tollamálum, innflutningsferlum og vöruflæði samhliða reynslu af Business Central.
Sem ráðgjafi sérðu um þjónustu og daglega sérfræðiráðgjöf til viðskiptavina. Jafnframt tekur þú þátt í innleiðingar- og uppfærsluverkefnum þar sem áhersla er lögð á skilvirka ferla tengda fjármálum, birgðum, innflutningi og tollameðferð. Verkefnin eru fjölbreytt, krefjandi og gefandi.
Starfið gæti hentað þér ef þú:
- Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. viðskiptafræði, rekstrarfræði eða sambærilegt nám
- Hefur reynslu og góða þekkingu á fjárhags- og rekstrarkerfum, sérstaklega Microsoft Dynamics 365 Business Central / Dynamics NAV
- Hefur þekkingu á tollamálum, innflutningsferlum eða vöruflæði
- Ert skipulögð/lagður, sýnir frumkvæði og ert sjálfstæð/ur í vinnubrögðum
- Ert jákvæð/ur, býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hefur áhuga á þróun ferla, sjálfvirknivæðingu og nýrri tækni
Að auki er kostur ef þú:
- Hefur reynslu af sambærilegu ráðgjafastarfi
- Hefur góða tækniþekkingu og getu til að setja þig inn í ný kerfi
- Hefur reynslu af samþættingum eða verkefnum tengdum tollakerfum og flutningsaðilum
- Hefur unnið með innleiðingum eða uppfærslum á ERP kerfum
Hjá okkur færðu:
- Fjölbreytt og spennandi verkefni
- Tækifæri til að þróast í ört vaxandi tækniumhverfi
- Aðgang að nýjustu lausnum Microsoft
- Sveigjanlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi
- Öflugt teymi sérfræðinga og góðan starfsanda
Íslenska
Enska










