Heilbrigðisráðuneytið
Heilbrigðisráðuneytið

Yfirmaður þjónustuvers Stafrænnar heilsu

Við leitum að kraftmiklum og framsæknum stjórnanda til að leiða starfsemi þjónustuvers hjá Stafrænni heilsu í heilbrigðisráðuneytinu.

Þjónustuverið sinnir allri framlínu- og notendaþjónustu á sviði upplýsingatækni Stafrænnar heilsu, ásamt daglegum rekstri og vöktun tæknilegra innviða. Yfirmaður þjónustuvers er mikilvægur þátttakandi í þróunarverkefnum sem snúa að klínískri starfsemi. Verkefni einingarinnar eru fjölbreytt og krefjandi í einu stærsta og flóknasta tækniumhverfi landsins.

Hjá Stafrænni heilsu starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga á sviði upplýsinga- og heilbrigðistækni að margvíslegum og spennandi verkefnum. Markmið Stafrænnar heilsu er að leiða þróun og þjónustu stafrænnar heilbrigðisþjónustu á landsvísu og að veita framúrskarandi þjónustu við heilbrigðisstofnanir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða starfsemi þjónustuvers með það að markmiði að hámarka ánægju notenda
  • Leiða stefnumótun og framþróun einingarinnar, auka skilvirkni og gæði þjónustu
  • Ábyrgð á þjónustuupplifun og þjónustumælingum sem styðja markmið og tryggja framúrskarandi þjónustu
  • Stuðla að góðu samstarfi og samskiptum við opinberar heilbrigðisstofnanir og aðra hagaðila
  • Seta í leiðtogateymi Stafrænnar heilsu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi er æskileg

  • Farsæl stjórnunarreynsla á sviði tækniþjónustu, upplýsingatækni og/eða heilbrigðistækni er æskileg

  • Þekking á ITIL, beiðnakerfum og gæðaferlum er æskileg

  • Faglegur metnaður og öguð vinnubrögð

  • Drifkraftur, stefnumótandi hugsun og frumkvæði í starfi

  • Hæfni til að móta jákvætt vinnuumhverfi og byggja upp teymi

Auglýsing birt21. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hafnarstræti 5, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.TölvunarfræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar