
Deildarstjóri hugbúnaðarlausna
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum deildarstjóra fyrir Hugbúnaðarlausnir á upplýsingatæknisviði í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík.
Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði, virkri samkeppni og vernd samfélagsins. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Hugbúnaðarlausnir bera ábyrgð á hönnun, þróun, prófunum, rekstri og viðhaldi hugbúnaðarlausna Skattsins og veitir leiðsögn og tæknilega ráðgjöf til teyma og hagsmunaaðila. Deildin vinnur að fjölbreyttum og mikilvægum lausnum sem styðja við stafræna þjónustu, innri ferla og lögbundin verkefni Skattsins. Hugbúnaðarlausnir eru jafnframt í fararbroddi við innleiðingu gervigreindar í þróunarferla og á kjarna- og stoðsviðum Skattsins.
Í starfinu sameinast stjórnun og tæknileg forysta. Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegri stjórnun deildarinnar, þróun starfsfólks, faglegum gæðum og árangursríkri afhendingu hugbúnaðarlausna.
-
Leiða hugbúnaðarlausnir í samræmi við stefnu, markmið og þarfir Skattsins
-
Ábyrgð á daglegri stjórnun deildarinnar, markmiðasetningu og þróun starfsfólks
-
Tryggja skilvirka afhendingu hugbúnaðarlausna með áherslu á gæði, öryggi og rekstrarhæfni
-
Styðja teymi við lausnahönnun, tæknilegar útfærslur og fagleg vinnubrögð í þróun hugbúnaðarlausna
-
Leiða umbætur á þróunarferlum með áherslu á kóðagæði, CI/CD, sjálfvirknivæðingu og prófanir
-
Meta og innleiða nýja tækni og vinnubrögð í þróun og rekstri, m.a. gervigreind
-
Styðja við ábyrga og örugga notkun gervigreindar í samræmi við stefnu stofnunarinnar
-
Vera tengiliður við ytri hugbúnaðarbirgja og þróunarverktaka
-
Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, viðskiptafræði eða skyldum greinum, meistaragráða er æskileg
-
Reynsla af stjórnun teyma er æskileg
-
Þekking á hugbúnaðarþróunaraðferðum, svo sem Agile, DevOps og CI/CD
-
Þekking á lausnahönnun, rekstri hugbúnaðarlausna, gæðamálum, prófunum og öryggi
-
Reynsla af innleiðingu gervigreindar í hugbúnaðarþróun, t.d. með Claude Code eða GitHub Copilot er kostur
-
Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að vinna með ólíkum teymum og hagsmunaaðilum, ásamt góðri leiðtogahæfni
-
Skipulögð, lausnamiðuð og sjálfstæð vinnubrögð
-
Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
-
Hreint sakavottorð
Enska
Íslenska










