
Slippurinn Akureyri ehf
Um vinnustaðinn
Slippurinn Akureyri ehf. veitir alhliða þjónustu við sjávarútveginn og teljast helstu útgerðir á Íslandi til viðskiptavina fyrirtækisins, einnig hefur Slippnum orðið ágengt á erlendum markaði upp á síðakastið. Aðrir viðskiptavinir eru stóriðjur, virkjanir og ýmsar verksmiðjur. Slippurinn Akureyri ehf. er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði hér á landi. Það rekur upptökumannvirki og viðgerðarstöð fyrir skip og annast hvers konar málmsmíði, vélsmíði, vélaviðgerðir, rennismíði og skipasmíðar. Fyrirtækið rekur ennfremur trésmíðaverkstæði, sand/vatnsblástur, málun og verslun með eigin framleiðslu og aðrar vörur til skipa. Skipaþjónusta Slippsins Akureyri annast þjónustu við sjávarútvegsfyrirtæki og býður heildarlausnir í hönnun, endurnýjun og viðhaldi á skipum og búnaði þeirra. Þá færast svonefnd landverkefni stöðugt í aukana hjá fyrirtækinu. Starfsmenn Slippsins Akureyri eru um 160 talsins. Í þeim hópi eru m.a. rennismiðir, stálsmiðir, trésmiðir, tækjamenn, verkamenn og vélvirkjar. Helstu þættir í skipaþjónustu Slippsins Akureyri eru slipptökur, þvottur og málun, vélaupptökur, skrúfuviðgerðir, stálviðgerðir og ryðfrí smíði auk innréttingasmíði og hvers konar viðhalds á tréskipum. Ef sérfræðingarnir finnast ekki innan okkar vébanda köllum við til einhver af okkur frábæru samstarfsfyrirtækjum, því við leggjum mikið upp úr slagorðinu gamla og góða, sem einhver smíðaði um árið: ”Allt á einum stað!” Viðskiptavinurinn á ekki að þurfa að leita lengra en til okkar því við bjóðum heildarlausn á þeim verkefnum sem við blasa hverju sinni.

Hönnuður
Slippurinn Akureyri framleiðir eigin búnað fyrir matvælavinnslur undir vörumerkinu Slippurinn DNG og er leiðandi á sínu sviði.
Við leitum að öflugum hönnuðum til að taka þátt í þróun og hönnun á vinnslubúnaði fyrir fiskiskip og matvælavinnslur. Verkefnin snúa bæði að eigin vörum fyrirtækisins og sérlausnum fyrir viðskiptavini.
Hönnunardeildin starfar innan framleiðslusviðs og hefur starfsstöð á Akureyri. Vegna aukinna verkefna viljum við bæta við öflugu fólki í teymið okkar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun á vél- og vinnslubúnaði fyrir matvælavinnslur
- Gerð og frágangur framleiðsluteikninga
- Þátttaka í vöruþróun
- Gerð söluteikninga og kynningarefnis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. í tæknifræði,iðnfræði eða vélvirkjun
- Reynsla af þrívíddarhönnun, t.d. í Inventor
- Hæfni til að vinna vel í teymi
- Gott vald á íslensku og ensku
- Reynsla úr sjávarútvegi er kostur
Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Naustatangi 2, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaÁreiðanleikiAutodesk InventorFrumkvæðiInventorMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðTeikning
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

QA On The Floor Specialist
Alvotech hf

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Sérfræðingur í fjármálum
Abler - Sport Matters

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur

Sérfræðingur í hönnunarstýringu dreifikerfis
Veitur

Hugbúnaðarsérfræðingur
Skatturinn

Jarðvarmasérfræðingur
EFLA hf

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Leiðtogi málm- og véltæknigreina
Iðan fræðslusetur

Tæknifræðingur eða verkfræðingur sem vill sjá lausnir verða að veruleika
HD Iðn- og tækniþjónusta

Sérfræðingur í stofnkerfum
Míla hf

Sérfræðingur í notendaþjónustu
Fagkaup ehf