
Tæknistjóri hugbúnaðarþróunar
Viltu móta stafræna framtíð Reykjavíkurborgar?
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að reynslumiklum tæknilegum leiðtoga til að móta og leiða þróun hugbúnaðarlausna Reykjavíkurborgar. Um er að ræða fjölbreytt og áhrifamikið starf þar sem þú berð ábyrgð á heildararkitektúr og vinnur náið með teymum að þróun öruggra, skalanlegra og notendamiðaðra lausna. Þú situr jafnframt í tækniráði með upplýsingatæknishönnuði og tæknistjóra gagnaþjónustu.
Lausnirnar eru byggðar í nútímalegu skýjaumhverfi og fela m.a. í sér samþættingar milli kerfa og gagnalausna sem styðja við þjónustu borgarinnar.
Í starfinu sameinast stefnumótun og tæknileg forysta með virkri þátttöku í daglegu starfi þróunarteyma. Þú vinnur náið með forriturum og öðrum sérfræðingum, styður teymi í tæknilegum ákvörðunum og leggur áherslu á miðlun þekkingar og faglega þróun.
Þú hefur jafnframt yfirsýn yfir lausnir í þróun og rekstri og vinnur markvisst að umbótum á ferlum, gæðum og tæknilegri nálgun.
- Móta og viðhalda heildararkitektúr hugbúnaðarlausna í takt við stefnu og markmið
- Styðja teymi við lausnahönnun og tæknilegar ákvarðanir í samræmi við heildararkitektúr, þar á meðal samþættingar milli kerfa og hönnun gagnalausna
- Meta og innleiða nýja tækni og vinnubrögð, m.a. gervigreind
- Taka virkan þátt í kóðarýni og þróun hugbúnaðarlausna eftir þörfum (t.d. með .NET og React/TypeScript)
- Byggja og viðhalda skalanlegum, öruggum og rekstrarhæfum lausnum í skýjaumhverfi Azure, með yfirsýn yfir uppitíma, kostnað og nýtingu
- Leiða umbætur á þróunarferlum með áherslu á kóðagæði, CI/CD og sjálfvirknivæðingu
- Móta og styðja gæðastefnu, þar á meðal prófunarferla og sjálfvirkar prófanir
- Tryggja skýra og samræmda skjölun á arkitektúr og hönnun lausna
- Veita leiðsögn og tæknilega ráðgjöf til teyma og hagsmunaaðila
- Háskólamenntun í tölvunarfræði eða sambærileg reynsla
- Víðtæk reynsla af hugbúnaðarþróun, þar af a.m.k. 5 ár í leiðandi hlutverki
- Reynsla af að leiða og samhæfa teymi í flóknum verkefnum
- Reynsla af því að bera ábyrgð á hönnun hugbúnaðarlausna og tæknilegum ákvörðunum
- Þekking á nútímalegum hugbúnaðararkitektúr (t.d. skýjalausnir og micoservices)
- Reynsla af CI/CD ferlum og sjálfvirknivæðingu þróunarferla
- Þekking á öryggismálum í þróun og rekstri hugbúnaðar
- Sterk leiðtoga- og samskiptahæfni
- Greiningarhæfni og stefnumótandi hugsun, ásamt hæfni til að forgangsraða
- Hæfni til að miðla tæknilegum hugmyndum á skýran og aðgengilegan hátt
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Íslenska
Enska










