

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (QA)
Hefur þú gott auga fyrir gæðum?
APRÓ leitar að nákvæmum og skipulögðum einstaklingi í starf sérfræðings í hugbúnaðarprófunum (e. QA Specialist). Starfið er fjölbreytt og spannar bæði hefðbundið gæðaeftirlit sem og prófanir á kerfum sem nýta gervigreind – allt í nánu samstarfi við hagaðila innanhúss. Viðkomandi mun eiga virkan þátt í að þróa gæðaferla og innleiða sjálfvirkar prófanir en jafnframt kanna hvernig gervigreind getur nýst í sjálfum prófunarferlunum.
Viðkomandi verður hluti af þróunarteymi þar sem samvinna og þekkingarmiðlun skiptir sköpum. Hjá APRÓ vinnum við að hönnun og þróun öflugra hugbúnaðarkerfa sem mæta þörfum ólíkra rekstraraðila – þar sem öryggi, framúrskarandi notendaupplifun og áreiðanleiki eru í forgrunni.
- Gæðaeftirlit og prófanir á hugbúnaðarkerfum – bæði hefðbundnum og þeim sem nýta gervigreind
-
Þátttaka í hönnun, innleiðingu og viðhaldi á sjálfvirku prófunarumhverfi
-
Samvinna við forritara við gerð og framkvæmd skipulagðra prófunaráætlana
-
Greining, skráning og eftirfylgni galla og villna í hugbúnaði
- Skoða hvernig gervigreind getur nýst í prófunarferlum og innleiðing slíkra verkfæra þar sem við á
-
Aðstoð við mótun og skráningu á gæðaferlum og verklagsreglum
-
Stuðningur við að efla gæðamiðaða menningu innan APRÓ
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
-
Marktæk reynsla af gæðaferlum og prófunum í hugbúnaðarþróun
-
Hagnýt reynsla af sjálfvirkum prófunum
-
Hæfni til að skipuleggja og framkvæma bæði handvirkar og sjálfvirkar prófanir
- Áhugi á gervigreind og hvernig hún nýtist í hugbúnaðarþróun
-
Sjálfstæð vinnubrögð, nákvæmni og áreiðanleiki í afhendingu
-
Góð enskukunnátta – íslenska er kostur en ekki skilyrði
- Kaupréttaráætlun
- Sveigjanlegur vinnutími
- Árlegur heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
- Mötuneyti, drykkir og snarl á vinnustað
- Starfsmannafélag og reglulegir viðburðir
Enska
Íslenska










