

Veitingastjóri og hlutastörf
Gamla Reykjavík leitast eftir að ráða aðila með góða reynslu af rekstri veitingastaðs/bars í starf veitingastjóra. Gamla Reykjavík er nýr bar og veitingastaður á flottasta og vinsælasta horni Reykjavíkur við Austurvöll.
Veitingastjóri stýrir daglegri starfsemi á bar og í sal í samráði við framkvæmdastjóra. Reynsla úr veitinga/bar geiranum og íslenskukunnátta er nauðsynleg.
Einnig leitum við af hressu og duglegu fólki í kvöld, helgar og sumarvinnu. Starfið hentar vel fyrir fólk í skóla sem og auka vinna fyrir fólk í dag og vaktavinnum.
Viðkomandi þarf að geta unnið í hóp sem og sjálfstætt.
Reynsla, jákvæðni og dugnaður er skilyrði. Einungis einstaklingar 20 ára og eldri koma til greina í störfin.
Helstu verkefni veitingastjóra eru:
- Umsjón með starfsfólki, vaktaplönum og þjónustuflæði
- Tryggja framúrskarandi upplifun gesta og ásýnd staðarins
- Þjálfun starfsfólks
- Samskipti og bókanir við viðskiptavini í síma og tölvupósti
- Samvinna við eldhús og eigendur um daglegan rekstur
- Eftirlit með gæðum, skipulagi og stemningu staðarins
- Umsjón og utanumhald viðburða
Reynsla sem barþjónn er skilyrði.
Þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Almenn þekking á barstörfum.
Enskukunnátta nauðsynleg.
Góð íslensku kunnátta nauðsynleg.
Jákvætt viðhorf.
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á rekstur og upplifun staðarins
- Vinna með metnaðarfullu og öflugu teymi
- Lifandi og skemmtilegt vinnuumhverfi á sögufrægum stað í hjarta Reykjavíkur
- Tækifæri til þróunar og vaxtar í starfi
- Samkeppnishæf kjör fyrir réttan aðila
Íslenska
Enska










