Hreyfing
Hreyfing
Hreyfing

Umsjónarmaður hóptíma, þjálfunar og þróunar

Umsjónarmaður hóptíma, þjálfunar og þróunar ber ábyrgð á þróun, skipulagi og gæðum alls þjálfunarframboðs Hreyfingar, ásamt því að leiða öflugan hóp þjálfara. Starfið felur í sér að móta fjölbreytt og framúrskarandi framboð hóptíma, námskeiða og annarrar þjálfunar með skýra áherslu á upplifun, fagmennsku og framþróun.

Markmið starfsins er að tryggja framúrskarandi upplifun og árangur meðlima með öflugri liðsheild, sterkri gæðamenningu og stöðugri þróun þjónustunnar. Umsjónarmaður hóptíma, þjálfunar og þróunar er leiðtogi og fyrirmynd innan hópsins; faglegur, drífandi og metnaðarfullur einstaklingur með brennandi áhuga á heilsu, þjálfun og nýsköpun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þróun, skipulag og utanumhald þjálfunar

  • Ábyrgð á þróun, skipulagi og uppsetningu þjálfunarframboðs Hreyfingar

  • Hönnun og stöðug þróun tímatöflu hóptíma og námskeiða út frá eftirspurn, nýtingu og stefnu Hreyfingar

  • Tryggja fjölbreytt, spennandi og framúrskarandi framboð í takt við þarfir meðlima og þróun í heilsuræktargeiranum

  • Greina nýtingu, þátttöku og ánægju meðlima og nýta gögn til umbóta og þróunar

  • Umsjón með bakendakerfum, aðstöðu, búnaði og öðrum kerfum sem tengjast þjálfun

  • Kostnaðarstýring og ábyrgð á rekstrarmarkmiðum

Þróun og nýsköpun

  • Leiða þróun nýrra tíma, námskeiða og þjónustuleiða

  • Fylgjast vel með nýjum stefnum og trendum í heilsuræktargeiranum og innleiða reglulega spennandi nýjungar sem auka upplifun og árangur meðlima

  • Vinna með öðrum teymum að innleiðingu, kynningu og áframhaldandi þróun 

  • Skipuleggja viðburði, áskoranir og verkefni sem efla þátttöku, upplifun og samfélag innan Hreyfingar

Þjálfarahópur og menning 

  • Leiða, efla og þróa öflugan hóp þjálfara og skapa sterka liðsheild

  • Ráðningar, móttaka og þjálfun nýrra þjálfara

  • Handleiðsla, stuðningur og regluleg endurgjöf til þjálfarahóps 

  • Skipulag fræðslu, vinnustofa og fagþróunar innan hópsins, stuðla að faglegum vexti

  • Hlúa að metnaðarfullri, jákvæðri og faglegri menningu og góðum starfsanda

  • Reglulegir fundir með þjálfarahópnum til að virkja hópinn, leyfa styrkleikum að njóta sín og þróa framboð sameiginlega

  • Umsjón með skipulagi, samningum og utanumhaldi launamála

Gæðastjórnun

  • Byggja upp og viðhalda skýrum gæðastöðlum í allri þjálfun

  • Framkvæma gæðaúttektir, greina endurgjöf og nýta til stöðugra umbóta

  • Tryggja framúrskarandi upplifun meðlima í snertiflötum þjálfunar

  • Fylgjast með árangri og ánægju (m.a. NPS) og bregðast við með umbótum

Þjálfun

  • Taka virkan þátt í þjálfun á hóptímum og námskeiðum

  • Leiðandi fyrirmynd í þjálfun 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunnnám á háskólastigi í íþróttafræði, sjúkraþjálfun eða virk og gild þjálfaravottun (t.d. REPS, REPs Iceland, ACE, NASM, AFAA, Les Mills eða sambærileg alþjóðleg vottun)

  • Minnst 3–5 ára reynsla af hóptímaþjálfun og/eða kennslu innan heilsuræktargeirans

  • Reynsla af leiðtogahlutverki, verkefnastjórnun eða teymisstjórnun er kostur

  • Sterk þekking og áhugi á heilsu, hreyfingu og þróun í heilsuræktargeiranum

  • Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfni

  • Hæfni til að vinna sjálfstætt, fylgja verkefnum eftir og drífa áfram

  • Góð almenn tölvu- og kerfakunnátta

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur brennandi áhuga á þjálfun, þjónustu og framúrskarandi upplifun

  • Er drífandi, metnaðarfullur og tekur frumkvæði

  • Hefur sterka leiðtogaeiginleika og nær að hvetja fólk áfram

  • Er jákvæður liðsfélagi sem byggir upp sterka menningu og góðan starfsanda

  • Hefur auga fyrir gæðum, smáatriðum og upplifun meðlima

  • Fylgist vel með trendum og þróun í bransanum og hefur áhuga á nýsköpun

  • Er lausnamiðaður og nær að keyra hugmyndir áfram í framkvæmd

  • Er fagleg fyrirmynd og hefur góða nærveru í samskiptum

Auglýsing birt13. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Álfheimar 74, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar