Sunnuhlíð
Sunnuhlíð
Sunnuhlíð

Starfsmaður í Smart líkamsrækt, Sunnuhlíð

Við leitum eftir einstaklingum til starfa í Smart líkamsrækt Sunnuhlíð þar sem boðið er upp á frábæra aðstöðu til heilsueflingar fyrir 60 ára og eldri.

Starfið hentar vel fyrir einstaklinga sem stunda nám í sjúkraþjálfun eða íþróttafræði eða hafa annars konar bakgrunn og áhuga sem tengist hreyfingu. Um er að ræða 25% starfshlutfall og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf upp úr miðjum maí en annars eftir samkomulagi. Unnið er mánudaga og fimmtudaga (kl. 15.00 - 18.00), annan hvern þriðjudag (15.00 – 18.00) og annan hvern laugardag (9.00 – 12.00).

Starfið felur í sér að taka á móti gestum Smart líkamsræktar og vera þeim innan handar við æfingar í tækjasal, setja upp æfingaprógrömm og kenna á tækin. Í starfinu felst einnig umsjón með hóptímum eða einstaklingsmiðaðri þjálfun, auk daglegra verkefna svo sem tímabókana, símsvörunar, sölu á líkamsræktarkortum og frágangs.

Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, fagleg vinnubrögð og góðan liðsanda og hvetjum áhugasama til að senda okkur umsókn.

Helstu verkefni:

  • Móttaka og aðstoð við gesti í Smart líkamsrækt
  • Gerð æfingaáætlana

  • Hópþjálfun og/eða einstaklingsmiðuð þjálfun

  • Kennsla á æfingatæki

  • Önnur störf sem viðkoma líkamsræktinni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Nám eða reynsla sem tengist hreyfingu
  • Góð færni í mannlegum samskiptum

  • Jákvæðni og sveigjanleiki

  • Gott vald á íslensku

Upplýsingar:

Kristín Harðardóttir, deildarstjóri sjúkraþjálfunar, veitir frekari upplýsingar um starfið á [email protected] eða í síma 854 8972.

Frekari upplýsingar um Smart líkamsrækt Sunnuhlíð er að finna á https://vigdisarholt.is/sunnuhlid-smartlikamsraekt/

Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur13. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kópavogsbraut 1C, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar