Vinnueftirlitið
Vinnueftirlitið
Vinnueftirlitið

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu á vinnustöðum landsins?

Við leitum að einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum.Við leggjum ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á góð samskipti og lausnarmiðað og jákvætt hugarfar starfsfólks. Saman stuðlum við að bættri vellíðan og öryggi á vinnumarkaði.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík. Starfið felst í að sinna vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum að mestu á stórhöfuðborgarsvæðinu en einnig geta komið til verkefni á öðrum landsvæðum. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum geta verið lengri ferðir.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd vettvangsathugana og stafrænna samskipta
  • Skýrslugerð vegna eftirlits og eftirfylgni með fyrirmælum
  • Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu
  • Þátttaka í teymisvinnu
  • Þátttaka í umbótastarfi og verkefnum sem tengjast starfinu
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðn- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking eða reynsla af áhrifum vinnu á stoðkerfi starfsfólks er kostur
  • Þekking eða reynsla af áhrifum sálfélagslegs vinnuumhverfis á líðan fólks er kostur
  • Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, auk frumkvæðis til að fylgja málum eftir
  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Lausnarmiðuð nálgun og geta til að takast á við fjölbreytt verkefni með jákvæðu hugarfari
  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
  • Hreint sakarvottorð
  • Ökuréttindi
Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar