
Vinnueftirlitið
Hjá Vinnueftirlitinu starfar metnaðarfullur og samheldinn hópur sem leggur áherslu á að ná fram því markmiði að öll komi heil heim úr vinnu.
Við leitumst við að vera fyrirmyndarvinnustaður á sviði vinnuverndar og viljum að fagþekking starfsfólks sé eftirsótt til ráðgjafar í íslensku atvinnulífi. Við störfum saman í fagteymum og höfum skilvirka og vandaða stjórnsýslu að leiðarljósi.
Vinnueftirlitið býður fjölskylduvænt starfsumhverfi, samkeppnishæf starfskjör og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.

Viltu taka þátt í að efla öryggi og vellíðan á vinnustöðum?
Við leitum að einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum.Við leggjum ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á góð samskipti og lausnarmiðað og jákvætt hugarfar starfsfólks. Saman stuðlum við að öryggi og vellíðan starfsfólks á vinnumarkaði ásamt því að hér ríki samkeppnishæft og heilbrigt atvinnulíf.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík. Starfið felst í að sinna vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum að mestu á stórhöfuðborgarsvæðinu en einnig geta komið til verkefni á öðrum landsvæðum. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum geta verið lengri ferðir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd vettvangsathugana og stafrænna samskipta
- Skýrslugerð vegna eftirlits og eftirfylgni með fyrirmælum
- Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu
- Þátttaka og samstarf á sameiginlegum vettvangi gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði
- Þátttaka í teymisvinnu
- Þátttaka í umbótastarfi og verkefnum sem tengjast starfinu
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðn- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking eða reynsla á sviði mannvirkjagerðar er kostur
- Þekking eða reynsla af störfum við eftirlit er kostur
- Þekking eða reynsla af greiningum er kostur
- Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, auk frumkvæðis til að fylgja málum eftir
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Lausnarmiðuð nálgun og geta til að takast á við fjölbreytt verkefni með jákvæðu hugarfari
- Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Hreint sakarvottorð
- Ökuréttindi
Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur12. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dvergshöfði 2, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁhættugreiningFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSkipulagÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Smiður óskast í vinnu
Eignabyggð ehf.

Húsasmiðir óskast
RENY ehf.

Hönnuður lagna- og loftræsikerfa
VSB verkfræðistofa

Hönnuður á byggðatæknisviði
VSB verkfræðistofa

Verkefnastjóri hjá FSRE
FSRE

Smiðir / Carpenters Reyðarfjörður
VHE

Trésmíðafyrirtæki á Selfossi óskar eftir vönum húsasmið
Kvistfell ehf.

Úttektarfulltrúi
Umhverfis- og skipulagssvið

Byggingafræðingur / Byggingatæknifræðingur
Verksýn

Smiður
Múrkompaníið

Verkefnastjóri viðhalds og framkvæmda
Kaldalón

Verkstjóri
HHS verktakar ehf