
STOÐ
STOÐ er sérhæft þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði heilbrigðis og rannsókna. Fyrirtækið veitir heildstæðar lausnir sem styðja fagfólk, styrkja heilbrigðiskerfið, efla rannsóknir og bæta lífsgæði einstaklinga. Þannig erum við mikilvæg stoð einstaklinga, heilbrigðisþjónustu og rannsókna.
Stoð sameinaðist systurfélagi sínu MEDOR í mars 2026 undir nafninu STOÐ og byggir starfsemin á sterkum grunni þekkingar, reynslu og sérhæfingar. Fyrirtækið sameinar annars vegar áratugalanga reynslu í stoðtækjasmíði, ráðgjöf og lausnum sem styðja fólk í daglegum athöfnum og hins vegar djúpa sérþekkingu í sölu, ráðgjöf og þjónustu á hágæða lækningatækjum og hjúkrunar- og rannsóknarvörum.
Vöru- og þjónustuframboð STOÐAR spannar allt frá háþróuðum tækjum og rekstrarvörum fyrir heilbrigðisstofnanir til lausna fyrir einstaklinga, svo sem stoðtækja, hjálpartækja og hjúkrunarvara.
STOÐ byggir starfsemi sína á gildum um hreinskiptni, framsækni og áreiðanleika og leggur áherslu á langtímasamstarf og lausnir sem skapa raunverulegt virði.

Sjúkraþjálfari í stoðtækjadeild
STOÐ leitar að sjúkraþjálfara í stoðtækjadeild. Starfið er fjölbreytt og hentar einstaklingi sem hefur áhuga á að læra á spelkur, hlífar og mátanir og vinna með stoðtækjalausnir með það að markmiði að bæta líf og hreyfigetu einstaklinga.
Starfið felur í sér ráðgjöf varðandi tilbúnar spelkur og hlífar, mátanir og mælingar, ásamt samskipta og þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina og fagaðila.
Um er að ræða tímabundið 6 mánaða starf vegna fæðingarorlofs og þarf viðkomandi að geta hafið störf í byrjun ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mátanir, mælingar og ráðgjöf til viðskiptavina og fagaðila vegna stoðtækjalausna
- Umsjón og eftirflygni með fyrirspurnum og tilboðum
- Samskipti við viðskiptavini, fagaðila, stofnanir og þjónustuaðila
- Samstarf við birgja og erlenda samstarfsaðila
- Regluleg samskipti við heilbrigðisstarfsfólk, stofnanir og þjónustuaðila
- Náið samstarf og upplýsingamiðlun innan deildarinnar og til annarra eininga STOÐ
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í sjúkraþjálfun, stoðtækjafræði eða önnur sambærileg heilbrigðismenntun sem nýtist í starfi
- Áhugi á stoðtækjum og stoðkerfi
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfileikar
- Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Auglýsing birt27. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Dragháls 14-16 14R, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagViðskiptasamböndÞjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Dagvinna meðferðaraðila á Svefnmiðstöð
Landspítali

Deildarstjóri endurhæfingardeildar - Hrafnista Nesvellir
Hrafnista

Verkefnastjóri á menntadeild
Landspítali

Vörustjóri - sjúkraþjálfunar- og hjálpartækja
Fastus

Vörustjóri - lækningatæki
Fastus

Heilsuvernd hjúkrunarheimilið á Akureyri og K!M Endurhæfing leita að yfirsjúkraþjálfara
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Heilsuvernd hjúkrunarheimilið á Akureyri og K!M Endurhæfing leita að sjúkraþjálfara
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili

Heilsuvernd hjúkrunarheimilið á Akureyri og K!M Endurhæfing leita að yfirsjúkraþjálfara
KIM ENDURHÆFING

Heilsuvernd hjúkrunarheimilið á Akureyri og K!M Endurhæfing leita að sjúkraþjálfara
KIM ENDURHÆFING

Gigtarfélag Íslands óskar eftir sjúkraþjálfara
Gigtarfélag Íslands fta.