
K!M ENDURHÆFING leitar að sjúkraþjálfara
Við erum að fjölga í teyminu og óskum því eftir að ráða metnaðarfullan sjúkraþjálfara tengt heilsu- ,vinnuverndar-, og öldrunarþjónustu í starfsstöð okkar á Akureyri. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en um leið hluti af sterku teymi.
Ef þú ert árangursdrifinn og metnaðarfullur sjúkraþjálfari, tilbúinn að takast á við áskoranir þá gæti þetta verið tækifæri fyrir þig. Um er að ræða stöðugildi þar sem starfshlutfall getur verið á bilinu 70-100% þar sem unnið er á dagvinnutíma.
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili rekur tvenn hjúkrunarheimili á Akureyri. Hjá Heilsuvernd Hjúkrunarheimilum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi í öldrunarþjónustu sem er í stöðugri þróun. Markmið allrar þjónustu sem veitt er á Heilsuvernd Hjúkrunarheimilunum er að tryggja öryggi og vellíðan íbúa og standa vörð um sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðingu.
Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.
- Þjálfun og meðferð einstaklinga
- Skipulag hópþjálfunar
- Fræðsla til skjólstæðinga
- Vinna í þverfaglegu teymi
- Þátttaka í þróun verkefna og þjónustu
- Löggilt sjúkraþjálfarapróf og íslenskt starfsleyfi landlæknis
- Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til þess að vinna í þverfaglegu teymi
- Framsækni og metnaður til að ná árangri í starfi
- Reynsla og/þekking á meðferð og greiningu stoðkerfissjúkraþjálfunar er styrkur
- Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
- Góð íslenskukunnátta æskileg
- Góð enskukunnátta
Enska
Íslenska



