
ÍSÍ & UMFÍ
ÍSÍ og UMFÍ standa að verkefninu og hafa auk þess fengið stuðning frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Samtökin hafa undirritað samning um eflingu íþróttastarfs á landsvísu með því að koma á fót svæðastöðvum og hvatasjóði. Svæðastöðvunum er ætlað að styðja við íþróttahéruð landsins við innleiðingu á stefnu íþróttahreyfingarinnar og ríkisins í íþróttamálum auk þess að auka þátttöku barna og ungmenna í íþróttastarfi með sérstaka áherslu á þátttöku fatlaðra barna, barna af tekjulægri heimilum og barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Svæðisfulltrúi íþróttahéraðanna á Norðurlandi eystra
Vilt þú vinna að eflingu íþróttastarfs á Norðurlandi eystra?
ÍSÍ og UMFÍ leita að einstaklingi með brennandi áhuga á íþróttastarfi í starf svæðisfulltrúa. Svæðisstöðvar íþróttahéraða hófu starfsemi í ágúst 2024 og skiptast í átta svæði hringinn í kringum landið.
Tveir svæðisfulltrúar vinna að eflingu íþróttastarfs á hverju svæði ásamt því að vinna að sameiginlegum verkefnum í öflugu teymi 16 svæðisfulltrúa. Starfsemi svæðisstöðva byggir á sjálfstæðum vinnubrögðum og drifkrafti þar sem samvinna, fagmennska og frumkvæði í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.
Staðsetning starfsins er á sambandssvæði eftirfarandi íþróttahéraða HSÞ, ÍBA, UÍF, UMSE.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar og stjórnvalda í íþróttamálum.
- Efling íþróttastarfs á svæðinu með áherslu á þátttöku barna og ungmenna
- Auka tækifæri og þátttöku barna og ungmenna með stuðningsþarfir, af efnaminni heimilum og af erlendum tungumála- og menningarbakgrunn í íþróttastarfi.
- Skipulagning og stýring verkefna
- Þróun og hugmyndavinna
- Samvinna með íþróttahéruðunum á Norðurlandi eystra, aðildarfélögum og öðrum hagaðilum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna í teymi
- Frumkvæði og drifkraftur
- Hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.
Auglýsing birt7. maí 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Hæfni
SkýrslurTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar

