Taktikal
Taktikal
Taktikal

Viltu vera næsta tækni- og þjónustuhetja Taktikal? 🚀

Ert þú týpan sem elskar að leysa flóknar þrautir, færð fiðring í magann yfir góðu notendaviðmóti og brennur fyrir því að láta viðskiptavinum líða eins og þeir séu í öruggum höndum?

Taktikal leitar að drífandi og tæknisinnaðri þjónustuhetju til að ganga til liðs við okkur. Við erum í örum vexti og þurfum manneskju sem getur tæklað allt frá daglegum stuðningi yfir í að innleiða lausnir fyrir ánægða viðskiptavini.

Um hvað snýst starfið?

Þetta er fjölbreytt hlutverk þar sem engir tveir dagar eru eins. Þú munt verja hluta tímans í að svara fyrirspurnum og aðstoða viðskiptavini. Hinn hluti tímans fer í að tryggja að viðskiptavinir okkar nýti lausnir Taktikal til fulls og ýmsa aðstoð við söluteymið okkar.

Hver ert þú?

Við leitum að manneskju sem þrífst í kraftmiklu umhverfi þar sem hlutirnir gerast hratt.

Við leitum að einstaklingi sem:

  • Hefur brennandi áhuga á tækni og getur tileinkað þér ný kerfi á mettíma.

  • Ert með framúrskarandi samskiptahæfileika og þjónustulund.

  • Skrifar og talar framúrskarandi íslensku og ensku.

  • Hefur samviskusemi, vandvirkni að leiðarljósi og leitar alltaf leiða til að gera hlutina betur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framlínustuðningur: Svara fyrirspurnum af öryggi og fagmennsku.

  • Sölustuðningur: Aðstoða söluteymið okkar, t.d. með því að setja upp lifandi „demo“ fyrir viðskiptavini.

  • Innleiðing (Onboarding): Aðstoða nýja viðskiptavini við uppsetningu og þjálfun í samstarfi við söluteymið okkar.

  • Sköpun og miðlun: Skrifa leiðbeiningar, fréttabréf og hjálpargreinar sem gera líf notenda auðveldara.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. viðskipti eða markaðsmál) 
  • Reynslu af framlínustarfi eða starfi í þjónustuveri er stór plús
Fríðindi í starfi

Nútímaleg skrifstofa í Reykjavík (með útsýni)

Frábær matur (þar á meðal vegan)

Stuðningur við vöxt í starfi

Íþróttastyrkur

Auglýsing birt21. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar