
Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf. er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi. Fyrirtækið var stofnað haustið 2000 og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu í rekstri fjöleignarhúsa, bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis.
Gildi Eignaumsjónar eru framsækni, öryggi og fagmennska og markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu þar sem áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla.
Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og góðan starfsanda. Hjá okkur starfa nú um 65 einstaklingar, öflugur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr teymavinnu og góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og umhverfi sem öllum líði vel í. Vinnan er bæði krefjandi og skemmtileg og liðsheildin góð, sem skilar sér í árangri og líflegu vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu og fagmennsku. Eignaumsjón leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem efla það og styrkja. Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum.

Bókari
Við hjá Eignaumsjón óskum eftir að ráða öflugan bókara á fjármálasvið félagsins.
Við leitum að áhugasömum og lífsglöðum liðsfélaga í bókhaldsteymi félagsins í fullt starf. Umsækjandi þarf að hafa reynslu af bókhaldi ásamt því að vera tilbúinn til þess að auka getu sína í lifandi starfsumhverfi með góðum samstarfsfélögum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla bókhalds og afstemmingar
- Gerð og yfirferð ársreikninga
- Framkvæmd rekstraruppgjöra
- Samskipti við viðskiptavini Eignaumsjónar varðandi bókhald, reikninga, kostnaðarskiptingu, innheimtu og áætlanir
- Samskipti við þjónustuaðila fyrir hönd viðskiptavina Eignaumsjónar
- Önnur fjölbreytt dagleg störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Góð þekking á Excel
- Þekking á DK bókhaldskerfi kostur
- Góð almenn tölvukunnátta
- Áhersla lögð á frumkvæði, fagmennsku og nákvæm vinnubrögð
- Viðkomandi þarf að vera lipur í mannlegum samskiptum og geta unnið sjálfstætt og í hópi
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
- Íþróttastyrkur
- Fræðslustyrkur
- Öflug skemmtinefnd sem stendur fyrir reglulegum viðburðum
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur14. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingÁrsreikningarFrumkvæðiJákvæðniMicrosoft ExcelSjálfstæð vinnubrögðUppgjörVandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Skrifstofu- og gæðastjóri
Raftákn

Sérfræðingur í fjárreiðudeild
Hafnarfjarðarbær

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Vanur bókari óskast
Tölvutek

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte
Deloitte

Sérfræðingur - Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankinn

Bókari og skrifstofufulltrúi
Akraborg ehf.

Bókhald / Fjármál
Mögnum

Áhafnavakt/Daily Crew Operations
Icelandair

Ráðgjafi í innri endurskoðun og upplýsingaöryggi
KPMG á Íslandi