
Starf forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. september 2026.
Heilbrigðisstofnun Austurlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, með síðari breytingum. Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu og rekur 13 starfsstöðvar, þar á meðal umdæmissjúkrahús Austurlands, heilsugæslustöðvar og sel og hjúkrunarheimili. Heilbrigðisumdæmi Austurlands þjónar sveitarfélögunum Vopnafjarðarhreppi, Fljótsdalshreppi, Múlaþingi og Fjarðabyggð.
Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.
Forstjóri ber ábyrgð á að Heilbrigðisstofnun Austurlands starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.
Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist í starfi. Hæfnikröfur eru eftirfarandi:
- Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum er skilyrði.
- Þekking og reynsla af stjórnun á rekstri í heilbrigðisþjónustu er æskileg.
- Þekking og reynsla af áætlunargerð og fjármálum hins opinbera er æskileg.
- Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu æskileg.
- Farsæl reynsla af stjórnun mannauðsmála.
- Reynsla af stefnumótun í heilbrigðisþjónustu.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skýr framtíðarsýn fyrir starfsemi sjúkrahússins og heilbrigðiskerfið.
- Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Íslenska
Enska

