Stólpi
Stólpi

Forstjóri

Stólpi leitar að reynslumiklum leiðtoga til að gegna stöðu forstjóra.

Forstjóri Stólpa ber ábyrgð á stefnu, rekstri og árangri félagsins. Viðkomandi mun leiða stjórnendateymi félagsins og vera drifkraftur í áframhaldandi vexti félagsins.

Forstjóri ber jafnframt ábyrgð á því að vera í góðum tengslum við stjórn, starfsfólk, hluthafa og aðra hagaðila, vinna markvisst í mótun árangursríkrar fyrirtækjamenningar og tryggja að Stólpi haldi áfram að vera leiðandi á sínu sviði en Stólpi er í dag leiðandi í sölu og leigu húseininga og vinnubúða til fyrirtækja og opinberra aðila.

Helstu verkefni:

  • Móta og innleiða langtímamarkmið, framtíðarsýn og stefnu Stólpa í samvinnu við stjórn.
  • Tryggja árangursríkan og skilvirkan daglegan rekstur fyrirtækisins.
  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við viðskiptavini og birgja
  • Tryggja framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.
  • Samskipti við birgja og þróun samstarfs við þá.
  • Tryggja fjárhagslegan stöðugleika fyrirtækisins.


Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og árangur af stjórnunarstörfum.
  • Reynsla af rekstri, greiningum og gerð kynninga.
  • Reynsla af viðskiptatengslum og samningagerð.
  • Reynsla af fasteignum og skipulagsvinnu er kostur.
  • Framsýn hugsun og sterkur hæfileiki til að finna leiðir til vaxtar.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að byggja upp sterka liðsheild.


Félagið rekur gámaleigu og sölu og opnaði nýlega nýja starfsstöð á 30 þúsund fermetra athafnasvæði við Gullhellu í Hafnarfirði. Félagið annast einnig gámaviðgerðir, kæliþjónustu, trésmíðaþjónustu og smiðjustarfsemi á starfsstöð félagsins í Sægörðum í Reykjavík. Auk þess að leiða Stólpa á forstjóri sæti í framkvæmdastjórn Styrkás hf.

Stólpi er eitt kjarnasviða Styrkás, rekstrarfélags sem var stofnað árið 2022. Skeljungur, Klettur, Stólpi, Hreinsitækni og HRT þjónusta eru dótturfélög Styrkás og saman mynda þessi félög samstæðu sem er leiðandi í þjónustu á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi. Styrkás hf. stefnir að skráningu í kauphöll á öðrum ársfjórðungi 2027.


Umsóknarfrestur er til og með 8. júní næstkomandi.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hefur Hilmar G. Hjaltason ([email protected]).

Trúnaður ríkir um umsóknir og öllum verður svarað.

Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gulhella 2
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar