

Framkvæmdastjóri – Ofar
Við leitum að framsýnum og drífandi leiðtoga til að taka við sem framkvæmdastjóri Ofar og leiða félagið inn í næsta kafla.
Ofar er eitt af stærstu og rótgrónustu tæknifyrirtækjum landsins, með yfir 100 starfsmenn og margra áratuga reynslu. Félagið styður mörg af öflugustu fyrirtækjum og stofnunum landsins með tölvubúnaði, tæknilausnum og alhliða þjónustu frá meira en 150 vörumerkjum, þar á meðal Lenovo, Canon, Bose, Sony og IBM.
Nýlega keypti Nova klúbburinn hf., móðurfélag Nova, allt hlutafé í Ofar. Með því að gerast hluti af Nova fjölskyldunni hefst nýr kafli í sögu félagsins og fram undan eru spennandi tækifæri til vaxtar, nýsköpunar og aukinnar samlegðar.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á rekstri, stefnumótun og þróun Ofar. Þetta er krefjandi og skapandi leiðtogahlutverk þar sem viðkomandi mun:
- Móta og hrinda í framkvæmd metnaðarfullri stefnu í síbreytilegu tæknilandslagi
- Efla samkeppnishæfni félagsins og festa það enn frekar í sessi sem leiðandi samstarfsaðila íslenskra fyrirtækja og stofnana
- Dýpka samstarf við öfluga alþjóðlega birgja og halda áfram að þróa vöru- og þjónustuframboð félagsins
- Byggja upp árangursdrifna menningu og leiða öflugt teymi reyndra sérfræðinga og stjórnenda
- Nýta þau einstöku tækifæri sem skapast með nýju eignarhaldi til frekari vaxtar
- Árangursrík reynsla sem stjórnandi í rekstri og uppbyggingu fyrirtækja
- Öflugur bakgrunnur í sölu, þjónustu eða rekstri á fyrirtækjamarkaði
- Áhugi á tækni og skilningur á þeim tækifærum sem hún skapar fyrir íslenskt atvinnulíf
- Reynsla af stefnumótun og hvernig á að breyta framtíðarsýn í áþreifanlegan árangur
- Hæfni til að leiða og styðja teymi, laða fram það besta í fólki og setja þarfir viðskiptavina í fyrsta sæti
- Framúrskarandi samskiptahæfni, drifkraftur og frumkvæði
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi










