Landsnet
Landsnet
Landsnet

Framkvæmdastjóri Viðskipta og samfélags

Landsnet leitar að öflugum og framsýnum stjórnanda sem vill koma með okkur í vegferð sem stuðlar að raforkudrifinni verðmætasköpun byggðri á traustum grunni. Við leggjum áherslu á að tengja saman með skilvirkum hætti aukna orkuvinnslu og eftirspurn samhliða styrkingu grunnkerfisins. Við berum ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu og rekstri áreiðanlegs og hagkvæms flutningskerfis raforku sem styður við verðmætasköpun og vöxt samfélagsins.

Við höfum mótað nýja stefnu þar sem við ætlum að mæta nýjum tímum með öflugum hópi starfsfólks og okkur vantar liðsauka. Við erum mikilvægur innviður og hlutverk okkar er að flytja orku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélags og atvinnulífs til framtíðar.

Við erum framsækið þekkingarfyrirtæki sem leggur áherslu á virðingu, samvinnu og ábyrgð. Ef þú átt erindi og sterkan áhuga á vegferð með okkur í átt að raforkudrifinni verðmætasköpun á traustum grunni viljum við gjarnan heyra í þér!

Framkvæmdastjóri Viðskipta og samfélags ber meðal annars ábyrgð á samskiptum við viðskiptavini og hagaðila og leiðir teymi á sviði viðskipta- og gjaldskrárþróunar. Viðkomandi situr í framkvæmdastjórn Landsnets.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra og efla samband við núverandi og verðandi viðskiptavini fyrirtækisins
  • Byggja upp og leiða teymi viðskipta- og gjaldskrárþróunar
  • Stýra undirbúningi og þróun nýrra framkvæmdaverkefna
  • Efla tengsl og samband við hagaðila um hagsmuni viðskipta og samfélags
  • Viðkomandi er hluti af framkvæmastjórateymi Landsnets
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Starfsreynsla af tengdri starfsemi og samningagerð er kostur
  • Farsæl reynsla sem stjórnandi öflugra liðsheilda
  • Stefnu- og árangursmiðuð hugsun
  • Ríkt frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfileiki að tjá sig í ræðu og riti
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar