
Coripharma ehf.
Coripharma er nýsköpunarfyrirtæki í Hafnarfirði sem þróar og framleiðir samheitalyf fyrir önnur lyfjafyrirtæki á erlendum mörkuðum.
Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það vaxið hratt og undirbýr nú útflutning á tugum lyfja. Í dag starfa um 220 manns hjá Coripharma. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs (Supply Chain Operations)
Coripharma leitar að metnaðarfullum leiðtoga til að leiða vörustjórnunarsvið og taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins.
Um er að ræða lykilhlutverk með ábyrgð á flóknum og alþjóðlegum virðiskeðjum, frá innkaupum og framleiðslustýringu til vöruafhendinga og þjónustu við viðskiptavini. Helstu ábyrgðarsvið snúa að innkaupum, birgðastjórnun, umbúðastýring, áætlanagerð, verkefnum tengdum innleiðingum og útvistunum verkefna, verkefnastýringu nýrra framleiðsluverkefna, samskipti við birgja, þjónustu við viðskiptavini og reikningagerð.
Staðan snýr að því að tryggja stöðugt framboð, hámarka rekstrarhagkvæmni og tryggja framúrskarandi þjónustustig í krefjandi og reglustýrðu umhverfi.
Starfið er staðsett á Íslandi og heyrir beint undir forstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráðu í vörustjórnun, verkfræði, viðskiptafræði eða skyldum greinum
- Reynslu af vörustjórnun í lyfjaiðnaði eða sambærilegum iðnaði
- Reynslu af því að vinna í alþjóðlegu rekstrarumhverfi
- Góða samskiptahæfni og mannlega færni til að vinna í krefjandi og síbreytilegu umhverfi.
- Stjórnendareynslu og leiðtogahæfni til að byggja upp öflug teymi sem vinna náið með innri og ytri hagsmunaaðilum
- Framúrskarandi greiningarhæfni og sterka stefnumótandi sýn, er lausnamiðaður og á auðvelt með að taka ákvarðanir
Auglýsing birt4. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFagmennskaMannleg samskiptiMetnaðurSkipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (10)

Bæjarstjóri
Grindavíkurbær

Framkvæmdastjóri – Ofar
Ofar

Framkvæmdastjóri Háskóla Íslands
Háskóli Íslands

Sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs
Sólar

Sveitarstjóri
Sveitarfélagið Strandabyggð

Forstöðumaður Stefnu og fjárfestinga
Landsnet

Forstöðumaður Lögfræði og stjórnkerfa
Landsnet

Framkvæmdastjóri Viðskipta og samfélags
Landsnet

Sviðsstjóri byggingarsviðs
VSB Verkfræðistofa

Deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins
Rauði krossinn á Íslandi