

Sviðsstjóri kjara- og þjónustusviðs
Sameyki leitar að öflugum, reynslumiklum og framsýnum sviðsstjóra kjara- og þjónustusviðs.
Um er að ræða nýtt og mikilvægt stjórnunarhlutverk í nýju skipulagi Sameykis. Sviðsstjóri kjara- og þjónustusviðs ber heildarábyrgð á stefnumótun, þróun og samræmingu sviðs þar sem sameinast kjaramál, þjónusta við félagsfólk og fagleg ráðgjöf.
Viðkomandi leiðir kjaraviðræður í samstarfi við formann Sameykis, hefur yfirumsjón með túlkun og framkvæmd kjarasamninga og tryggir samræmd vinnubrögð innan sviðsins. Starfið krefst sterkrar fagþekkingar, leiðtogahæfni, góðrar yfirsýnar og hæfni til að vinna með flókin úrlausnarefni og ólíka hagsmuni.
Sviðsstjóri kjara- og þjónustusviðs heyrir undir framkvæmdastjóra Sameykis og verður hluti af framkvæmdarteymi félagsins.
- Móta og innleiða stefnu kjara- og þjónustusviðs í samræmi við heildarstefnu Sameykis
- Leiða og bera ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd kjaraviðræðna í samstarfi við formann
- Tryggja faglega meðferð, túlkun og framkvæmd kjarasamninga
- Hafa heildaryfirsýn yfir verkefni sviðsins, forgangsröðun, verklag og þróun þjónustu
- Tryggja áreiðanleg gögn, greiningar og upplýsingar um kjara- og þjónustutengd mál.
- Leiða starfsfólk sviðsins, styðja við teymisstjóra og stuðla að góðri samvinnu, skýrum boðleiðum og faglegum vinnubrögðum.
- Koma fram fyrir hönd Sameykis í samskiptum við viðsemjendur, opinberar stofnanir, ráðuneyti, BSRB og önnur stéttafélög
- Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við samstarfsaðila og miðla upplýsingum
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði vinnumarkaðsfræða, lögfræði, viðskiptafræða eða stjórnsýslu
- Víðtæk reynsla af kjaramálum, samningaviðræðum og/eða vinnurétti
- Stjórnunarreynsla og reynsla af mannaforráðum nauðsynleg
- Sterk þekking á starfsemi stéttarfélaga og opinberri stjórnsýslu
- Mjög góð færni í greiningu, mati og túlkun sérfræðilegra upplýsinga
- Góð talnaleg færni og hæfni til að rökstyðja og miðla niðurstöðum með tölulegum gögnum
- Mjög góð færni í stefnumótun og verkefnastjórnun
- Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og góð kunnátta í ensku
Íslenska
Enska










