
Landsnet
Landsnet er þjónustufyrirtæki í eigu þjóðarinnar sem sér um flutning raforku á Íslandi um háspennukerfi landsins. Fyrirtækið tryggir öruggan, stöðugan og skilvirkan flutning rafmagns um landið. Hjá Landsneti starfar kraftmikill hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og menntun. Boðið er upp á faglegt umhverfi með stórum hópi sérfræðinga og fyrirmyndaraðstöðu. Áhersla er lögð á þjálfun og þróun starfsfólks og jafnvægi einkalífs og vinnu skiptir fyrirtækið miklu máli. Gildi Landsnets eru: Ábyrgð – Samvinna – Virðing.
Sérfræðingur í viðskiptagreiningum
Mótaðu framtíð raforkukerfisins með gögnum og greiningum
Við hjá Landsneti leitum að sérfræðingi í viðskiptagreiningum sem vill taka þátt í að greina þróun raforkunotkunar, móta sviðsmyndir til framtíðar og styðja við mikilvægar ákvarðanir um uppbyggingu flutningskerfisins.
Starfið er hluti af teymi viðskiptaþróunar þar sem gögn, greiningar og framtíðarsýn fara saman. Þú munt vinna með tekju- og orkuáætlanir, raforkuspár og greiningar sem hjálpa Landsneti að undirbúa sig fyrir aukna raforkunotkun, orkuskipti og síbreytilegt rekstrarumhverfi.
Helstu verkefni
- Gerð raforkuspáa og sviðsmynda um þróun raforkunotkunar til framtíðar.
- Tekju- og orkuáætlanir Landsnets og greining á áhrifum ólíkra þróunarleiða.
- Greining, túlkun og framsetning gagna sem styðja við stefnumótun og ákvarðanatöku.
- Uppsetning og þróun mælaborða og upplýsingamiðlunar.
- Þátttaka í mótun viðskipta- og uppbyggingaráætlana fyrir flutningskerfið.
- Samstarf við sérfræðinga innan Landsnets og hagaðila raforkumarkaðarins.
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði verkfræði, hagfræði, stærðfræði, tölfræði eða annarra raunvísinda.
- Hefur áhuga á gagnagreiningu, áætlanagerð og þróun framtíðarsviðsmynda.
- Hefur sterka greiningarhæfni og nýtur þess að takast á við flókin viðfangsefni.
- Getur miðlað niðurstöðum og innsýn á skýran og aðgengilegan hátt.
- Hefur áhuga á orkumálum, samfélagslegum innviðum og þeirri þróun sem fram undan er.
Við bjóðum þér
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun mikilvægra innviða samfélagsins.
- Samstarf við öflugan hóp sérfræðinga sem vinna að framtíð raforkukerfisins.
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni þar sem gögn og greiningar eru í forgrunni.
- Sveigjanlegt og metnaðarfullt starfsumhverfi sem styður við þróun og nýsköpun.
- Skemmtilegt vinnuumhverfi með aðstöðu til líkamsræktar, frábæru mötuneyti og svo margt fleira.
Auglýsing birt5. júní 2026
Umsóknarfrestur21. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðFrumkvæðiGagnagreiningMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Svæðisstjóri fyrirtækja á Suðurlandi
Arion banki

Framkvæmdarstjóri - öflugt félag á byggingamarkaði
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu

Stærðfræðikennari við Borgarholtsskóla
Borgarholtsskóli

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Launafulltrúi hjá Akraneskaupstað
Akraneskaupstaður

Tæknimaður/verkefnastjóri
Loftorka Reykjavík ehf.

Sérfræðingur í fjármálum
Abler - Sport Matters

Avionics / Modifications Engineer
Air Atlanta Icelandic

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Sérfræðingur í hönnunarstýringu búnaðar
Veitur