

Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á persónuvernd og upplýsingaöryggi til að ganga til liðs við vaxandi teymi sérfræðinga okkar.
Við veitum heildstæða ráðgjöf á sviði persónuverndar með áherslu á uppbyggingu og áhættustýringu persónuverndar og innleiðingu verklags og öryggisráðstafana sem styðja við örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga.
Verkefnin eru fjölbreytt og fela meðal annars í sér ráðgjöf, greiningar, úttektir og innleiðingu umbóta hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka þátt í að styðja viðskiptavini við draga úr áhættu við vinnslu persónuupplýsinga og uppfylla kröfur laga og reglna á sviði persónuverndar.
Helstu verkefni felast í alhliða ráðgjöf og áhættustýringu á sviði persónuverndar, greiningu á fylgni við lög og reglur og þróun verklags sem styður við örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga, svo sem:
- Veita fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða ráðgjöf á sviði persónuverndar
- Meta, greina og skjalfesta ferla, verklag og áhættur tengdar vinnslu persónuupplýsinga
- Framkvæma gloppugreiningar, úttektir og meta fylgni við lög, reglur og staðla á sviði persónuverndar
- Veita ráðgjöf um túlkun á löggjöf, reglum, stöðlum og tilmælum og úrlausn álitaefna
- Vinna náið með viðskiptavinum og veita þeim ráðgjöf og stuðning í fjölbreyttum verkefnum á sviði persónuverndar
- Sinna verkefnum tengdum útvistuðu hlutverki persónuverndarfulltrúa fyrir viðskiptavini Deloitte
- Vera í samskiptum við persónuverndaryfirvöld og aðstoða viðskiptavini í tengslum við kvartanir, fyrirspurnir eða úttektir Persónuverndar
- Ráðleggja viðskiptavinum um viðeigandi viðbrögð við öryggisbrestum og aðstoða við úrlausn og eftirfylgni þeirra
- Aðstoða við úttektir innri endurskoðunar hjá viðskiptavinum Deloitte á fylgni við lög og reglur, m.a. á sviði persónuverndar- og peningaþvættislaga
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. lögfræði eða önnur viðeigandi menntun/reynsla
- Þekking á persónuverndarlögum og lagaframkvæmd á því sviði
- Lausnamiðuð hugsun, sjálfstæði í starfi og geta til að halda mörgum boltum á lofti í einu
- Góð greiningarhæfni
- Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu
- Fagmennska, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
- Hæfni í að setja fram skýran, hnitmiðaðan og faglegan texta og miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt
- Skilningur og áhugi á upplýsingaöryggi, netöryggi og regluverki á því sviði er kostur
- Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
Að auki bjóðum við upp á:
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
- Styrki til nýbakaðra foreldra
- Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahóp, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi
Enska
Íslenska






