
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Lögfræðingur á skrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn til að takast á við krefjandi verkefni.
Velferðarsvið veitir fjölbreytta og metnaðarfulla velferðarþjónustu sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að auknum lífsgæðum íbúa Reykjavíkurborgar. Á velferðarsviði starfa um 3.500 manns á yfir 100 starfsstöðum.
Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð rík áhersla á að starfsstaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk af ólíkum menningarlegum bakgrunni til að sækja um.
Skrifstofa velferðarsviðs er með regnbogavottun Reykjavíkurborgar
Helstu verkefni og ábyrgð
- Margvísleg ráðgjöf fyrir framkvæmdastjórn, aðra stjórnendur og starfsmenn sviðsins á grundvelli þeirra laga, reglugerða og reglna sem gilda um starfsemi sviðsins, s.s. félagsþjónustu, málefna fatlaðs fólks, aldraðra, barna og ungmenna og innflytjenda.
- Samningagerð.
- Verkefni er varða persónuvernd.
- Umsjón með samskiptum við aðrar opinberar stofnanir varðandi ýmis álitaefni í daglegum rekstri.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kandidats- eða meistarapróf í lögfræði.
- Reynsla af sviði opinberrar stjórnsýslu.
- Þekking á verkefnum er varða persónuvernd.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi.
- Þekking á stjórnsýslu velferðarmála og málefnum innflytjenda er kostur.
- Íslenskukunnátta á C1-stigi samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- Fyrsta flokks vinnustað
- Krefjandi og skemmtileg verkefni
- Góða liðsheild og góð samskipti
- 36 stunda vinnuviku í fullu starfi
- Heilsustyrk, menningarkort og frítt í sund
- Samgöngusamning
- Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
Auglýsing birt29. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Embættispróf í lögfræðiFrumkvæðiMannleg samskiptiNákvæmniOpinber stjórnsýslaSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Heimahjúkrun Norðvestur í nýju og glæsilegu húsnæði
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umsjón með eldhúsi í félagsstarfi fullorðinna í Hvassaleiti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Ráðgjafi í málefnum fullorðins fatlaðs fólks
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúa vantar í sumarafleysingar á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í tímabundinni búsetu fyrir karlmenn í miðbænum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Framsýnn og öflugur forstöðumaður óskast í Liðsaukann
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf sem skiptir máli! Vertu hluti af öflugu og samheldnu teymi í Stjörnugróf 11
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (10)

Alþjóðasérfræðingur í norrænu samstarfi
Skrifstofa Alþingis

Áhugaverð tækifæri fyrir sérfræðinga
Landhelgisgæsla Íslands

Húnaþing vestra auglýsir starf þroskaþjálfa
Húnaþing vestra

Teymisstjóri á leyfasviði
Útlendingastofnun

Innkaupafulltrúi
Landsvirkjun

Ert þú lögfræðingurinn sem við leitum að?
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Löggiltur fasteignasali
Valhöll fasteignasala

Lögfræðingur
Fjarskiptastofa

Lykilsérfræðingur í leyfis- og skipulagsmálum
Veitur

Blaðamaður á Viðskiptablaðinu
Viðskiptablaðið