
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Umsjón með eldhúsi í félagsstarfi fullorðinna í Hvassaleiti
Félagsstarf fullorðinna í Hvassaleiti 56-58 leitar að starfsmanni til að vera með umsjón yfir eldhúsinu. Um er að ræða opið félagsstarfi sem býður upp á hádegismat og selur veitingar í eftirmiðdags kaffi.
Umsjónarmaður í eldhúsi hefur yfirumsjón með daglegum rekstri eldhússins og skipuleggur störfin í samræmi við almenna heilbrigðis- og hollustuhætti. Annast móttöku og framreiðslu hádegisverðar frá framleiðslueldhúsi.
Ábyrgð á skipulagningu og framreiðslu á hádegismat og eftirmiðdags kaffi. Sinnir almennum eldhússtörfum og þvotti frá eldhúsi. Ber ábyrgð á daglegu uppgjöri og stendur skil á því til forstöðumanns. Sér um að húsnæði sé tilbúið til viðeigandi notkunar og ber ábyrgð á frágangi eftir notkun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja dagleg störf og annast verkstjórn í eldhúsi.
- Ábyrgð á áætlunum um pantanir/innkaup á matvælum og hreinlætisbúnaði og eftirlit með birgðum.
- Annast pantanir, móttöku og framreiðslu hádegisverðar frá framleiðslueldhúsi.
- Undirbúa kaffisölu og sjá um bakstur.
- Annast uppgjör og stendur skil á sölu í eldhúsi til yfirmanns.
- Sinna almennum eldhússtörfum, s.s. að leggja á borð, prenta út matseðla, aðstoða þá sem þurfa aðstoð og sjá um sérrétti.
- Sjá um að þrif og frágangur í eldhúsi sé í samræmi við reglur heilbrigðiseftirlitsins og hefur eftirlit með að hitastig á kæliskápum og frystum sé rétt.
- Sjá um að húsnæði sé tilbúið til viðeigandi notkunar og ber ábyrgð á frágangi eftir notkun.
- Annast undirbúning og taka þátt í framkvæmd þegar sérstakir viðburðir eru á dagskrá, t.d. í tengslum við sýningar, fundahöld og/eða aðra uppákomur.
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af eldhússtörfum.
- Reynsla af verkstjórn kostur.
- Hæfni í mannlegum samkiptum og jákvætt viðmót.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Reglusemi og þrifnaður.
- Góð almenn menntun
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Frítt í sund í öllum sundlaugum Reykjavíkur
- Heilsuræktarstyrkur
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
Auglýsing birt28. maí 2026
Umsóknarfrestur7. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hvassaleiti 56, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Ráðgjafi í málefnum fullorðins fatlaðs fólks
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúa vantar í sumarafleysingar á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í tímabundinni búsetu fyrir karlmenn í miðbænum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Framsýnn og öflugur forstöðumaður óskast í Liðsaukann
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf sem skiptir máli! Vertu hluti af öflugu og samheldnu teymi í Stjörnugróf 11
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Starf í matvælaframleiðslu
Skólamatur

Join the Summer Season Team at Hótel Húsafell 2026
Hótel Húsafell

Ertu hress og til í tuskið?
Serrano

Central kitchen assistant position
Marinar ehf.

Chef- Full time position
South Iceland

Chefs / Cooks
Efstidalur 2

Helgarvaktir, sumarvinna á kaffihúsinu Grænu könnunni og í verslun á Sólheimum í Grímsnesi
Sólheimasetur ses

Matráður óskast í Dal
Dalur

Ert þú sushi kokkur? Sushi snillingur óskast í fullt starf!
UMAMI

Matráður óskast
Golfklúbburinn Keilir

Kokkur / Chef 🥩
Fiskmarkaðurinn

Chef / Kokkur
Seljalandsfoss Horizons