
Vestfjarðastofa
Vestfjarðastofa er sjálfseignastofnun sem vinnur að hagsmunamálum íbúa, sveitarfélaga, stofnana og fyrirtækja á Vestfjörðum og ráðgjöf og þjónustu tengda atvinnu- og byggðaþróun, frumkvöðlastarfsemi og menningu í víðum skilningi.

Verkefnisstjóri á Reykhólum
Vestfjarðastofa, með stuðningi Byggðastofnunar, auglýsir eftir verkefnisstjóra í Reykhólahreppi. Verkefnisstjóri gegnir hlutverki leiðtoga verkefnisins Brothættra byggða í Reykhólahreppi ásamt verkefnisstjórn og starfar hann í umboði hennar að aðgerðum til eflingar byggðar og mannlífs í Reykhólahreppi.
Verkefnið hófst árið 2025 og er til fimm ára og er hluti af verkefnum Brothættra byggða og er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Vestfjarðastofu og Reykhólahrepps.
Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á Reykhólum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fylgja eftir ákvörðunum verkefnisstjórnar
- Hafa frumkvæði að nýjum verkefnum á svæðinu
- Upplýsingamiðlun og skýrslugerð til íbúa og samstarfsaðila
- Íbúafundir og þátttaka í samfélagsverkefnum í sveitarfélaginu
- Aðstoð við gerð styrkumsókna og viðskiptaáætlana
- Önnur verkefni í samstarfi við sveitarfélagið samkvæmt samkomulagi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í verkefninu. Háskólamenntun áskilin.
- Reynsla af ráðgjöf og atvinnu- og byggðaþróun æskileg
- Reynsla af verkefnastjórn æskileg
- Þekking, skilningur og reynsla af byggðamálum mikilvæg
- Þekking á styrkjaumhverfi og skrifum umsókna í innlenda og erlenda sjóði mikilvæg
- Góð tölvu- og tæknifærni
- Frumkvæði, jákvæðni, samstarfsfærni og sjálfstæð vinnubrögð eru mikilvægir eiginleikar.
Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Maríutröð 5A, 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniÖkuréttindiSamviskusemiSveigjanleikiTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (10)

Verkefnastjóri residensíu / Residency Programme Coordinator
SÍM,samband ísl myndlistarmanna

Sérfræðingur í kostnaðarstýringu
Landsvirkjun

Mannverk leitar að öflugum og reynslumiklum verkefnastjórum
Mannverk

Hefur þú reynslu af verkefnastjórnun?
Seðlabanki Íslands

Yfirverkstjóri í Þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar
Kópavogsbær

Vörustjóri skjalastýringar
Arion banki

Verkefnastjóri í fræðslu og þróun
Mímir-símenntun

Vilt þú hafa áhrif á framtíð Hornafjarðar?
Sveitarfélagið Hornafjörður

Hönnuður í fjölbreytt verkefni á sviði samgangna
Hnit Artelia

Verkefnastjóri Listasmiðju
Ævintýraborg ið Eggertsgötu