
Sveitarfélagið Hornafjörður
VELKOMIN TIL HORNAFJARÐAR – ÞAR SEM NÁTTÚRAN, SAMFÉLAGIÐ OG FRAMTÍÐIN MÆTAST
--------
Í Hornafirði býðst þér einstakt tækifæri til að lifa og starfa í einu af öflugustu og fallegustu sveitarfélögum landsins. Hér móta jöklar, fjöll og strandlengja stórbrotið landslag sem veitir bæði innblástur og ró.
Hornafjörður er barnvænt, öruggt og samhent samfélag með öfluga skóla, fjölbreytt tómstundastarf og trausta innviði. Uppbygging er í fullum gangi – í atvinnulífi, þjónustu og menningu – og framtíðin björt.
Hjá Sveitarfélaginu Hornafirði starfar öflugur og samheldin hópur fólks með metnað fyrir framtíð sveitarfélagsins. Íbúar í Hornafirði eru í dag rúmlega 2800 og hefur fjölgun síðustu ára verið á forsendum verðmætasköpunar en mikil uppbygging á sér nú stað í sveitarfélaginu.
Ef þú leitar að lífsgæðum, nánara sambandi við náttúruna og samfélagi þar sem framlag þitt skiptir máli – þá er Hornafjörður rétti staðurinn fyrir þig.

Vilt þú hafa áhrif á framtíð Hornafjarðar?
Við leitum að öflugum, framsýnum og skipulögðum leiðtoga. Auglýst er eftir deildarstjóra skipulags-, umhverfis- og byggingardeildar, sem jafnframt gegnir hlutverki skipulagsfulltrúa.
Um er að ræða lykilhlutverk í uppbyggingu og mótun sjálfbæra og blómlega framtíð samfélagsins á einstökum stað. Ertu tilbúinn að takast á við krefjandi verkefni og leiða mikilvæga þróun?
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með öflugu teymi sem samanstendur af umhverfisfulltrúa, byggingarfulltrúa og verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála.
- Yfirumsjón með öllum skipulagsmálum sveitarfélagsins, þar á meðal gerð og endurskoðun aðal- og deiliskipulags í samræmi við sýn sveitarfélagsins.
- Undirbúningur mála fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd, útgáfa framkvæmdaleyfa og túlkun skipulagsskilmála.
- Umsjón með landupplýsingakerfum, kortagrunnum og úthlutun lóða, ásamt utanumhaldi landeigna.
- Gerð umsagna um laga- og reglugerðarbreytingar og eftirlit með skipulagsmálum aðliggjandi sveitarfélaga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
- Umsækjandi þarf að uppfylla hæfisskilyrði 5. mgr. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
- Reynsla af skipulagsmálum er nauðsynleg. Reynsla af opinberri stjórnsýslu og mannaforráðum er stór kostur.
- Jákvæðni, lipurð í samskiptum, rík þjónustulund og hæfni til að miðla flóknum upplýsingum á skýran hátt.
- Drifkraftur, sjálfstæð vinnubrögð og mjög góð færni í íslensku.
- Góð tölvukunnátta og þekking á upplýsingatækni sem tengist starfssviðinu.
Við hvetjum einnig einstaklinga sem uppfylla ekki hæfisskilyrði skipulagslaga, en uppfylla önnur skilyrði, til að sækja um. Í þeim tilfellum kemur til greina tímabundin ráðning á grundvelli undanþágu ráðherra skv. 6.mgr. 7.gr. skipulagslaga.
Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur7. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Hæfni
Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri við borframkvæmdir
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða

Viltu leiða stórt Evrópuverkefni?
EIMUR

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar? Verkefnastjóri í endurbótadeild
Landsvirkjun

Sérfræðingur í innkaupum
Landsvirkjun

Skipulagsstjóri
Reykjalundur

Viðskiptastjóri ferðaþjónustu
Íslandsstofa

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Leiðtogi málm- og véltæknigreina
Iðan fræðslusetur

Verkefnastjóri í MICE
HL Adventure

Deildarstjóri óskast á íbúðarkjarna
Ás styrktarfélag

Sérfræðingur í verkefnaundirbúningi á Suðurlandi - preppaðu með okkur!
Rarik ohf.

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali