
Rafal ehf.
Rafal er leiðandi í þróun, framleiðslu og uppbyggingu raforkuinnviða með yfir 40 ára reynslu í faginu. Við sérhæfum okkur í hönnun, smíði og samsetningu hátæknilausna, þar á meðal tengivirkja, dreifistöðva, spenna, ljósleiðaraneta, snjalllausna og götulýsingar fyrir veitu og orkufyrirtæki, stóriðju og sveitarfélög. Við erum vel búin sérhæfðum búnaði og tökum að okkur bilana- og ástandsgreiningar auk prófana fyrir rafveitur.
Í dag starfa um 150 starfsmenn. Rafal býður upp á traustan og dýnamískan vinnustað þar sem vöxtur og velferð starfsfólks er höfð að leiðarljósi.

Verkefnastjóri í gagnaveri
Við leitum að reynslumiklum verkefnastjóra til að styðja við okkar lið í stóriðjunni. Ef þú hefur reynslu af verkefnastýringu, stjórnun mannafla, samskipti við verkkaupa, tilboðsgerð og gerð framvindu, þá gæti þetta verið tækifærið fyrir þig!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra fjölbreyttum verkefnum frá upphafi til enda
- Utanumhald og leiðsögn
- Þátttaka í tilboðsgerð
- Magntaka og rýni verkgagna með tilliti til tæknilegra úrlausna
- Gerð verkáætlana og skipulagning framkvæmda
- Þátttaka í verkfundum, upplýsingagjöf til verkkaupa og samskipti við eftirlitsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í rafvirkjun eða sambærilegu sem nýtist í starfi
- Reynsla af verkefnastýringu
- Reynsla af rafiðnaði, reynsla úr stóriðju er kostur
- Reynsla af stjórnun og að leiða teymi
- Framúrskarandi skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir samskiptahæfileikar
- Stundvísi
- Rík öryggisvitund
Fríðindi í starfi
- Vandað og öruggt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að starfa við spennandi og krefjandi verkefni
- Góður starfsandi og stuðningur innan teymisins
- Niðursgreiddur hádegisverður
- Íþróttastyrkur
- Árlegar heilsufarsmælingar
Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur5. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiSkipulagVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Vilt þú taka þátt í að efla stöðu fyrirtækja á sviði verslunar og þjónustu?
Samtök Verslunar og þjónustu

Ertu rafvirkjasnillingur eða rafveituvirki?
Rafal ehf.

Verkefnasafnsstjóri (e. portfolio manager) hjá Stafrænni heilsu
Heilbrigðisráðuneytið

Nýsköpunarstjóri - Stafræn heilsa
Heilbrigðisráðuneytið

Rafvirki/Rafeindavirki í Tæknideild Nortek á Akureyri.
Nortek

Verkefnastjóri í klínískum starfsemisgreiningum á hagdeild
Landspítali

Rafvirki
Raf-X

Sérfræðingur í viðskiptaþróun
Landsnet

Publishing Producer
Fenris Creations

Rafvirkjar - Rafvirkjanemar
Múltíverk ehf

Verkefnisstjóri á Reykhólum
Vestfjarðastofa

Vélstjóri, vélvirki, laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.