

Sérfræðingur í fjármálum
Sérfræðingur í fjármálum á skrifstofu fjármála og rekstrar
Það er eins gott að þeim milljörðum sem menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið ber ábyrgð á sé vel varið. Þess vegna leitum við að manneskju sem hefur hæfileika til að sjá skóginn fyrir trjánum og elskar að fást við tölur.
Viðkomandi þarf að hafa eiginleika til að bregða sér í ýmis hlutverk en viðkomandi mun taka þátt í vinnu er lítur að hringrás opinberra fjármála, í samræmi við lög þar um. Í því felst meðal annars vinna að fjárlögum og fjármálaáætlun ár hvert, fylgja eftir áætlunum stofnana, greina afkomu og hafa eftirlit með og veita ráðgjöf til ríkisaðila sem undir ráðuneytið heyra.
Ef gangverk opinberra fjármála höfðar til þín þá er þetta rétti starfsvettvangurinn fyrir þig. Sendu inn umsókn.
- Sérfræðingur á skrifstofu fjármála og rekstrar með áherslu á framkvæmd fjárlaga
- Framfylgja lögum um opinber fjármál (LOF)
- Samskipti við Fjársýslu ríkisins, önnur ráðuneyti og aðra ríkisaðila
- Samskipti við undirstofnanir ráðuneytisins
- Þátttaka í teymisvinnu innan ráðuneytisins, s.s. vegna opinberra fjármála, samningagerðar, fasteignamála o.fl.
- Greiningarvinna s.s. frávikagreiningar og sviðsmyndagreiningar
- Greinargerðarskrif og minnisblaðagerð. Afla gagna og svara fyrirspurnum frá Alþingi, Ríkisendurskoðun, fjölmiðlum o.fl.
- Taka þátt í verkefnum er snúa að bókhaldi innan skrifstofunnar
- Önnur tilfallandi verkefni
- Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilegum greinum
- Mjög góð færni í vinnu með tölur og úrvinnslu gagna. Mjög góð Excel kunnátta og geta til að vinna með Power BI
- Þekking á Oracle eða öðrum bókhaldskerfum nauðsynleg
- Þekking á lögum um opinber fjármál og framkvæmd þeirra er kostur
- Vilji og geta til að leggja sig fram í spennandi og krefjandi umhverfi
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði
- Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt
- Mjög góð samskipta- og skipulagshæfni. Þjónustulund og jákvæðni
- Geta til að veita ráðgjöf/leiðsögn til samstarfsaðila á uppbyggilegan hátt
Íslenska
Enska










