Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Sérfræðingur í úttekt á kennaranámi

Laust er til umsóknar starf sérfræðings í úttekt á gæðum náms til kennsluréttinda við íslenska háskóla. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur falið Gæðamati háskóla að framkvæma úttektina. Um er að ræða tímabundna ráðningu sem nær yfir 11 mánuði í fullu starfi og gert er ráð fyrir að hefjist í ágúst 2026.

Sérfræðingurinn gegnir lykilhlutverki í gagnaöflun, rannsóknarvinnu og daglegu utanumhaldi úttektarferlisins í samráði við verkefnastjóra úttekta hjá Gæðamati háskóla. Sérfræðingurinn vinnur með úttektarnefnd, sem skipuð verður alþjóðlegum sérfræðingum, en situr þó ekki í nefndinni. Sérfræðingurinn styður við verkefnið á öllum stigum þess, frá gagnaöflun og greiningu til skila á lokaskýrslu.

Um úttektina

Úttekt á gæðum náms til kennsluréttinda tekur til fjölda námsbrauta við fjóra háskóla: Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Listaháskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.

Markmið úttektarinnar er að varpa heildstæðu ljósi á stöðu kennaramenntunar á Íslandi. Til skoðunar er hversu vel námsbrautirnar undirbúa nemendur til kennslu og hvernig innri gæðastjórnun námsins er háttað. Úttektin mun varpa ljósi á góða starfshætti sem og tækifæri til umbóta, en nefndin mun leggja fram tillögur sem styðja við áframhaldandi þróun og gæði kennaranáms á Íslandi. Auk þess felur úttektin í sér alþjóðlegan samanburð við tilhögun kennaranáms í völdum samanburðarlöndum.

Úttektarferlið fer fram í fjórum áföngum: gagnasöfnun og greiningu, spurningakönnunum til hagaðila, vettvangsheimsóknum og skýrsluskrifum. Ferlinu lýkur með birtingu opinberrar skýrslu þar sem lagðar verða fram tillögur að umbótum til ráðuneytisins og þeirra háskóla sem úttekin nær til.

Úttektin fer fram á ensku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda utan um skipulag úttektarferlisins í samráði við Gæðamat háskóla

  • Hafa umsjón með gagnasöfnun fyrirliggjandi gagna, öflun nýrra gagna, úrvinnslu þeirra og greiningu

  • Vera tengiliður milli úttektarnefndarinnar og háskólanna sem úttektin nær til

  • Gegna hlutverki ritara úttektarnefndarinnar

  • Aðstoða við skipulagningu vettvangsheimsókna

  • Vinna að ritun úttektarskýrslunnar í samstarfi við úttektarnefndina

  • Veita úttektarnefndinni og verkefnastjóra úttekta hjá Gæðamati háskóla stuðning á öllum stigum ferlisins

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða í menntavísindum, félagsvísindum eða skyldum greinum. Doktorsgráða er kostur

  • Reynsla af gagnaöflun og greiningu megindlegra og eigindlegra gagna

  • Hæfni til að vinna sjálfstæða rannsóknarvinnu

  • Reynsla af verkefnisstjórnun

  • Afbragðs skipulagshæfni og samskiptafærni

  • Framúrskarandi færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

  • Þekking á íslenska háskólakerfinu, kennaranámi og íslenska skólakerfinu er kostur

  • Þekking á gæðamálum háskóla er kostur

Viðkomandi má ekki vera í ráðningasambandi við neinn fjögurra háskólanna meðan á úttektinni stendur, sitja í stjórnum eða nefndum háskólanna eða stunda rannsóknarverkefni á vegum þeirra.

Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur18. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Rannsóknir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar