Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Verkefnastjóri/sérfræðingur

Þjónustusvið Vegagerðarinnar leitar eftir öflugum einstaklingi til að sinna verkefnastjórn og sérfræðiráðgjöf á vegaþjónustudeild. Starfsmaður gegnir hlutverki öryggisfulltrúa jarðganga. Vegagerðin er ábyrgðaraðili 12 jarðganga á Íslandi og er ábyrgð á daglegum rekstri þeirra á höndum Vegagerðarinnar á viðkomandi svæði. Þjónustusvið Vegagerðarinnar ber ábyrgð á öryggismálum og samræmingu á rekstri allra jarðganga. Þjónustusvið Vegagerðarinnar ber einnig ábyrgð á samræmingu og þróun í rekstri vegakerfisins auk upplýsingagjafar því tengdu.

Á þjónustusviði starfa um 55 starfsmenn á fjórum deildum sem eru: Almenningssamgöngur, tækjabúnaðardeild, vöktun og upplýsingar og vegaþjónusta. Starfið er auglýst án staðsetningar þar sem Vegagerðin er með svæðisstöðvar í öllum landsfjórðungum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirábyrgð og eftirlit með fjármagni til reksturs og þjónustu jarðganga á landsvísu.
  • Gegnir hlutverki öryggisfulltrúa jarðganga með ábyrgð á verklagsreglum, áhættumati, viðbragðsáætlunum og eftirfylgni öryggismála.
  • Samstarf við neyðaraðila og hefur umsjón með skipulagi og framkvæmd öryggisæfinga í jarðgöngum og einnig fyrir aðra hluta vegakerfisins.
  • Samstarf við viðbragðasaðila á landsvísu og kemur að gerð viðbragðsáætlana og öðrum verkefnum í rekstri samgöngukerfis.
  • Ábyrgð á samræmingu og forgangsröðun verkefna í samræmi við áhættumat og rekstrarþörf jarðganga.
  • Þátttaka í þróun framtíðarsýnar, tækniþróun og umbótaverkefnum á sviði öryggis og reksturs jarðganga.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verkfræðingur, tæknifræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Meistarapróf kostur.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð.
  • Þekking og reynsla af ferlavinnu og hagnýtingu hugbúnaðar kostur.
  • Þekking og skilningur á tækjavinnu, rekstrar- og öryggsmálum. 
  • Hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og að vinna sjálfstætt.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður í starfi.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.  
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Auglýsing birt5. júní 2026
Umsóknarfrestur16. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Búðareyri 11, 730 Reyðarfjörður
Breiðumýri 2
Miðhúsavegur 1, 600 Akureyri
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Borgarbraut 66, 310 Borgarnes
Dagverðardalur 3, 400 Ísafjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar