Samkaup
Samkaup
Samkaup

Sérfræðingur í vörukaupaskráningu

Nýtt og spennandi tækifæri á fjármálasviði Samkaupa.

Samkaup er eitt stærsta verslunarfyrirtæki landsins og rekur fjölda verslana undir þekktum vörumerkjum um allt land. Við erum nú að byggja upp nýtt teymi vörukaupaskráningar innanhúss og leitum að reynslumiklum og drífandi sérfræðingi til að taka þátt í þeirri uppbyggingu frá fyrsta degi.

Teymið tilheyrir fjármálasviði og ber ábyrgð á bókun allra vörukaupareikninga félagsins. Þetta er kjörið tækifærið fyrir þann sem hefur sterka reynslu af vörukaupum og bókhaldi, hefur metnað til að móta verkferla og vill hafa raunveruleg áhrif í lifandi og hröðu starfsumhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bókun vörukaupareikninga og eftirlit með réttmæti þeirra
  • Eftirlit með kostnaðarverðum og frávikum
  • Samskipti við birgja
  • Yfirsýn yfir birgðastöðu
  • Afstemmingar lánardrottna
  • Þátttaka í umbótum og mótun verkferla við innleiðingu verkefnisins innanhúss
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Marktæk reynsla af vörukaupaskráningu og bókhaldi eða sambærilegum störfum skilyrði
  • Háskólagráða eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af vinnu í Business Central er kostur
  • Sjálfstæði, frumkvæði og góð skipulagshæfni
  • Fagmennska, nákvæmni og öguð vinnubrögð
  • Rík þjónustuund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
  • Afsláttarkjör í verslunum
  • Velferðarþjónusta 
  • Heilsustyrkur
Auglýsing birt10. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmára 1
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar