

Sumarævintýri með Eimskip á Grænlandi
Eimskip Greenland leitar að drífandi liðsfélaga til starfa í Nuuk frá næstu vikum og fram til a.m.k. september. Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt, kynnast öðruvísi starfsumhverfi og upplifa stórbrotna náttúru og menningu Grænlands.
Starfið er fjölbreytt og snýr m.a. að:
- Dagleg verkefni í inn- og útflutningi (sjó- og flugfragt)
- Samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila
- Bókunum, eftirfylgni sendinga og daglegu flæði verkefna
Við leitum að einstaklingi sem:
- Er skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum
- Er með góða þjónustulund og samskiptahæfni
- Hefur góða enskukunnáttu og er fljótur að tileinka sér ný kerfi
- Hefur áhuga á að stökkva inn í nýtt og spennandi umhverfi
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Í boði er:
- Skemmtilegt starf í litlu, samhentu teymi
- Alþjóðlegt vinnuumhverfi
- Samkeppnishæf kjör og aðstoð við flutninga
Eimskip hefur verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914. Félagið rekur 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum, meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Enska










