Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS)

Framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) leitar að faglegum og reynslumiklum stjórnanda í starf framkvæmdastjóra fjármála. Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt starf hjá árangursdrifinni stofnun þar sem reynir á greiningarhæfni, yfirsýn og frumkvæði. Fjöldi starfsfólks er tæplega 200 og er stofnunin með þrjár starfsstöðvar um landið. Auk þess ber HMS ábyrgð á rekstri lánasjóðs húsnæðismála svo að fjárhagsleg umsvif eru mikil. Jafnframt ber framkvæmdastjóri fjármála ábyrgð á teymi árangursstjórnunar og teymi gæða- og skjalamála.

Framkvæmdastjóri fjármála mun gegna lykilhlutverki í utanumhaldi með rekstri og þróun á sviði fjármála með það að markmiði að tryggja að HMS sinni lögbundnum verkefnum sem best á hverjum tíma og fari vel með opinbert fé. Framkvæmdastjóri fjármála mun sitja í framkvæmdastjórn og taka þannig þátt í stefnumótun og áætlanagerð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða skilvirka stýringu fjármála og öruggt innra verklag
  • Ábyrgð á gerð fjárhagsáætlana, rekstraráætlana, kostnaðareftirlits og launaáætlana
  • Gerð kostnaðargreininga, tölfræðivinnslu og fjárhagslegra greininga fyrir stjórnendur, stjórn og ráðuneyti
  • Reglubundin upplýsingagjöf fyrir stjórn og framkvæmdastjórn
  • Umsjón með bókhaldi og gerð ársreikninga
  • Eftirlit með rekstri og fjárhagslegum markmiðum HMS
  • Greiningar og miðlun upplýsinga til stjórnenda
  • Yfirumsjón með teymi árangursstjórnunar og teymi skjala- og gæðamála
  • Þróun og umbætur á verkferlum, verklýsingum og ferlum innan sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
  • Árangursrík reynsla af fjármálastjórnun, áætlanagerð og uppgjörsvinnu
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu og opinberum fjármálum er kostur
  • Góð greiningarhæfni og reynsla af framsetningu upplýsinga
  • Leiðtogahæfni, framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að ná árangri í samvinnu við stjórnvöld, hagaðila og þvert á skipulagseiningar stofnunarinnar
  • Umbótamiðað hugarfar, skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði og metnaður
  • Góð tölvukunnátta og þekking á fjárhags- og greiningartólum. Þekking á Orra, fjárhagskerfi ríkisins er kostur
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt11. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar