

Financial Analyst | Embla Medical
Viltu taka þátt í verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks?
Við leitum að öflugum og greiningarmiðuðum Financial Analyst til liðs við fjármálateymi Embla Medical í Reykavík. Starfið felur í sér fjármálagreiningar, fjárhagsspár, áætlanagerð og skýrslugerð sem styður stjórnendur við ákvarðanatöku. Viðkomandi vinnur náið með stjórnendum og stoðdeildum að því að veita innsýn sem stuðlar að betri rekstrar- og fjárhagsákvörðunum.
-
Greina fjárhagsleg og rekstrarleg gögn fyrir stjórnendur.
-
Útbúa rekstraráætlanir fyrir stoðdeildir félagsins.
-
Útbúa skýrslur og kynningarefni fyrir stjórnendur og samstæðuna.
-
Greina frávik áætlana og raunútkomu og leggja til úrbætur.
-
Tryggja gæði og áreiðanleika fjárhags- og rekstrarupplýsinga.
-
Háskólamenntun í viðskiptafræði, fjármálum, hagfræði eða sambærilegri grein.
-
Að minnsta kosti fjögurra ára reynsla af fjármálagreiningu, skýrslugerð og fjárhagsáætlanagerð.
-
Öflug greiningarhæfni og geta til að miðla flóknum upplýsingum með skýrum hætti.
-
Mjög góð færni í Excel og PowerPoint.
-
Reynsla af BI- og skýrslulausnum, svo sem Power BI, er kostur.
-
Áhugi og reynsla af notkun tæknilausna, sjálfvirkni og gervigreindar til að auka skilvirkni og gæði greininga og skýrslugerðar.
-
Frumkvæði, öguð vinnubrögð og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
-
Góð samskiptafærni og reynsla af samstarfi við stjórnendur.
- Líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
-
Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
-
Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
-
Árlegur sjálfboðaliðadagur
-
Öflugt félagslíf
- Alþjóðlegt starfsumhverfi með sterkum liðsanda og sameiginlegan tilgang
-
Tækifæri til náms, vaxtar og faglegrar þróunar
Íslenska
Enska








