
Sérfræðingur í fjármálum - Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir metnaðarfullum sérfræðingi í fjármálum til starfa á bókhaldssvið stofnunarinnar. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér samstarf þvert á starfsstöðvar HSN. Hægt er að sinna starfinu frá hvaða meginstarfsstöð HSN sem er. Sérfræðingur í fjármálum heyrir undir forstöðumann bókhalds, innheimtu og greininga.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir fjölbreytta heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi og rekur rúmlega 190 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. Meginstarfsstöðvar HSN eru á Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri, eru tæplega 38.000 og starfsfólk er um 800 talsins.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2027 eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Greiningar og vinna við stjórnendaupplýsingar
-
Rekstraráætlun
-
Fjárreiðar og greiðsla reikninga
-
Afstemming bankareikninga
-
Ferðauppgjör
-
Stuðningur við innheimtu og sjúkratryggingar
-
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmenn
Hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af fjármálum, rekstrargreiningum eða sambærilegum verkefnum skilyrði
-
Góð greiningarhæfni, framsetning gagna og tölvukunnátta skilyrði
-
Þekking á Akra (áætlunarkerfi ríkisaðila), Power BI, Qlik Sense eða sambærilegum kerfum er kostur
-
Góð samskiptahæfni og jákvæðni
-
Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð ásamt sterkri ábyrgðarkennd
-
Skipulagshæfni, frumkvæði og öguð vinnubrögð
-
Faglegur metnaður í starfi og árangursmiðað viðhorf
-
Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti skilyrði, önnur tungumálakunnátta er kostur
-
Gott orðspor og hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Harpa Sif Jónsdóttir
Forst.m. bókhalds, innheimtu og greininga
Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 432 4041
Þórhallur Harðarson
Framkvæmdastjóri fjármála og reksturs
Tölvupóstur: [email protected]
Sími: 432 4040
Íslenska
Enska










