AÞ-Þrif ehf.
AÞ-Þrif ehf.
AÞ-Þrif ehf.

Viðskiptastjóri

AÞ-Þrif leitar að öflugum og metnaðarfullum viðskiptastjóra til að styrkja teymi sérverkefna.

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á sölu, kann að veita framúrskarandi þjónustu og þekkir hvernig á byggja upp langtímaviðskiptasamband. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar vel einstaklingi sem nýtur þess að vera í samskiptum við fólk og finna lausnir.

Sem viðskiptastjóri sérverkefna gegnir þú lykilhlutverki í að þróa ný viðskipti og viðhalda eldri viðskiptasamböndum, greina þarfir viðskiptavina og tryggja fagleg samskipti og góða þjónustu

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og ráðgjöf til nýrra og núverandi viðskiptavina.

  • Móttaka og eftirfylgni fyrirspurna og sölutækifæra.

  • Heimsóknir til viðskiptavina, þarfagreining og umfangsmat verkefna.

  • Tilboðsgerð og eftirfylgni tilboða í samstarfi við þjónustustjóra.

  • Uppbygging og viðhald öflugra viðskiptasambanda.

  • Náið samstarf við þjónustu- og verkstjóra við skipulagningu og eftirfylgni verkefna.

  • Eftirfylgni með ánægju viðskiptavina, gæðum þjónustu og arðsemi verkefna.

  • Greining nýrra viðskiptatækifæra og þróun þjónustu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af sölu, viðskiptastjórnun eða sambærilegum störfum.

  • Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni.

  • Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð.

  • Góð viðskiptavitund og hæfni til að greina þarfir viðskiptavina.

  • Frumkvæði, metnaður og hæfni til að fylgja málum eftir.

  • Góð almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér ný kerfi.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta.

  • Ökuréttindi.

Auglýsing birt15. október 2026
Umsóknarfrestur31. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skeiðarás 12, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sölumennska
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar