

Ráðgjafi í innri endurskoðun og upplýsingaöryggi
Hefur þú áhuga á áhættustýringu, innra eftirliti og upplýsingaöryggi?
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum ráðgjafa til að ganga til liðs við teymi áhætturáðgjafar KPMG. Hjá okkur færðu tækifæri til að vinna að fjölbreyttum verkefnum á sviði innri endurskoðunar, tölvuendurskoðunar, upplýsingaöryggis og reglufylgni fyrir viðskiptavini af ólíkum stærðum og gerðum.
Starfið hentar bæði einstaklingum með reynslu á þessum sviðum og þeim sem hafa viðeigandi grunnþekkingu, mikinn áhuga og vilja til að byggja upp sérþekkingu með okkur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þátttaka í innri endurskoðun og úttektum á stjórnarháttum, áhættustýringu og innra eftirliti.
- Tölvuendurskoðun og úttektir á upplýsingatækni og upplýsingaöryggi.
- Úttektir og ráðgjöf vegna hlítingar við lög, reglur og annarra krafna.
- Gagnaöflun, greining og framsetning niðurstaðna.
- Samskipti við viðskiptavini og þátttaka í skýrslugjöf og kynningum.
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. viðskiptafræði, upplýsingatækni, verkfræði eða lögfræði.
- Reynsla eða þekking á innri endurskoðun, tölvuendurskoðun, ytri endurskoðun, innra eftirliti eða áhættustýringu er kostur.
- Þekking á helstu stöðlum og kröfum á sviði net- og upplýsingaöryggi er kostur.
- Góð greiningarhæfni og geta til að setja flókin viðfangsefni fram á skýran og hnitmiðaðan hátt.
- Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna vel í teymi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.
Að vinna hjá KPMG
Hjá KPMG á Íslandi starfa um 240 einstaklingar á 10 skrifstofum um land allt. Við erum fjölbreyttur hópur með ólíka menntun og reynslu sem vinnur saman að því að skapa virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.
Við leggjum áherslu á öfluga starfsþróun, sveigjanleika og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa, deila þekkingu og ná árangri saman.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni með raunveruleg áhrif.
- Öflug tækifæri til starfsþróunar og samstarfs við sérfræðinga KPMG hér á landi og erlendis.
- Sveigjanlegt vinnuumhverfi og möguleiki á að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
- Heilsueflandi vinnustaður með líkamsræktarstyrk, samgöngustyrk og KPMGfit æfingum.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- Stuðningur við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
- Stuðningsúrræði og styrkur fyrir verðandi og nýbakaða foreldra.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
Umsóknarfrestur er til og með 20. október.
Æskilegt væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum í [email protected] og Eva M. Kristjánsdóttir, hluthafi í áhætturáðgjöf og innri endurskoðun í [email protected].
Íslenska
Enska










