Orkusalan
Orkusalan

Sérfræðingur í þróun virkjana

Við hjá Orkusölunni leitum að öflugum sérfræðingi til að taka þátt í þróun virkjana og framgangi þróunarverkefna félagsins. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem unnið er að því að greina ný tækifæri til raforkuframleiðslu, koma verkefnum áfram og fylgja þeim eftir í gegnum ólík stig þróunar. Starfið felur í sér samskipti við landeigendur, sveitarfélög og aðra hagaðila og krefst getu til að byggja upp traust og góð samskipti.

Orkusalan á og rekur sex vatnsaflsvirkjanir og vinnur að þróun nýrra orkukosta á sviði vatnsafls, vindorku og jarðvarma. Flestar virkjanir og þróunarverkefni félagsins eru á Austurlandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greina og þróa ný tækifæri til raforkuframleiðslu á Íslandi
  • Hafa samskipti við landeigendur, leyfisveitendur, sveitarfélög og ráðgjafa
  • Fylgja eftir verkefnum félagsins á vettvangi rammaáætlunar, umhverfismats, skipulagsmála og annarra leyfisferla
  • Undirbúa og taka þátt í vettvangsrannsóknum
  • Greina og útfæra möguleika til endurbóta og eflingar á núverandi virkjunum Orkusölunnar
  • Hafa eftirlit með framvindu verkefna og lausn vandamála
  • Samræma vinnu og samstarf við önnur teymi innan fyrirtækisins
  • Taka þátt í þróun og uppbyggingu starfsemi og vinnustaðamenningar
  • Önnur tilfallandi verkefni innan eðlilegs starfssviðs
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði verkfræði, umhverfisfræði, viðskiptafræði, skipulagsmála, verkefnastjórnunar eða skyldra greina
  • Reynsla af orkumálum, þróun innviða eða sambærilegum verkefnum
  • Reynsla af verkefnastjórnun eða kynningarmálum er kostur
  • Þekking á leyfismálum og starfsumhverfi orkufyrirtækja er kostur
  • Frumkvæði, drifkraftur og góð greiningarhæfni
  • Sterk samskipta- og samstarfshæfni
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur21. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar