Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Verkefnastjóri rekstrar

Við hjá Landsvirkjun leitum að skipulögðum liðsfélaga til að leiða og samræma verkefni sem styðja við rekstur og þróun vatnsaflsstöðva og innviða Landsvirkjunar. Starfið er á sviði Vatnsafls og felur í sér fjölbreytt verkefni, meðal annars á sviði stjórnunarkerfa, gæðamála, upplýsingaöryggis og rekstrarþróunar.

Helstu verkefni:

  • Leiða og samræma verkefni þvert á reksturinn.
  • Taka þátt í þróun og viðhaldi stjórnunarkerfa, verklagsreglna og mælikvarða.
  • Styðja við innleiðingu og eftirfylgni á sviði upplýsingaöryggis og gæðamála.
  • Stuðla að stöðugum umbótum í rekstri og verklagi.
  • Fylgja eftir aðgerðum sem koma úr úttektum, áhættumati og umbótaverkefnum.
  • Taka saman greiningar, stöðuyfirlit og tillögur til stuðnings ákvörðunartöku.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af verkefnastjórnun, rekstri og/eða umbótastarfi.
  • Góð greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð.
  • Frumkvæði og hæfni til að fylgja verkefnum markvisst eftir.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Reynsla af stjórnunarkerfum, gæðamálum eða upplýsingaöryggi er kostur.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu.

Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar