Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar
Orka náttúrunnar

Deildarstjóri framleiðslustýringar

Orka náttúrunnar leitar að framsæknum leiðtoga til að byggja upp og leiða framleiðslustýringu innan Orkuframleiðslu.

Framleiðslustýring er ný eining sem styður við raforku- og heitavatnsframleiðslu virkjana með áherslu á gagnagreiningar, áætlanagerð, auðlindamál, árangursmælikvarða, yfirsýn viðhaldsverkefna og umbætur í rekstri.

Sem deildarstjóri berð þú ábyrgð á að móta starfsemi deildarinnar, byggja upp öflugt teymi og tryggja heildstæða samræmingu framleiðslu og viðhaldsverkefna virkjana ON. Þú tryggir að áætlanir, forgangsröðun, gögn, greiningar og umbótaverkefni styðji við öruggan, hagkvæman og sjálfbæran rekstur.

Hlutverkið krefst skýrrar yfirsýnar, sterkrar leiðtogahæfni og getu til að vinna þvert á rekstur, viðhald, tækni, auðlindamál og þróunarverkefni.

Ef þú hefur áhuga á að setja handbragð þitt á framtíðarþróun Nesjavallavirkjunar og Hellisheiðarvirkjunar, stærstu jarðvarmavirkjunar Evrópu, gæti þetta verið spennandi tækifæri fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í hlutverki deildarstjóra felst meðal annars:

  • Að móta markmið og starfsemi framleiðslustýringar í takt við stefnu ON
  • Að leiða uppbyggingu teymis og daglega stjórnun
  • Ábyrgð á mótun, samræmingu og eftirfylgni framleiðslu- og viðhaldsáætlana fyrir virkjanir ON
  • Að styðja við uppbyggingu sterkrar öryggismenningar og tryggja að öryggi sé ávallt haft að leiðarljósi 
  • Að leiða greiningar og umbótaverkefni sem auka skilvirkni og draga úr sóun
  • Að leiða auðlindamál gagnvart rekstri virkjana
  • Ábyrgð á skilgreiningu lykilmælikvarða, reglulegri eftirfylgni með árangri og miðlun niðurstaðna til starfsfólks
  • Að leiða umbætur sem styrkja rekstraröryggi, skilvirkni og gagnadrifna framleiðslustýringu
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem býr yfir:

  • Þekkingu á rekstri í framleiðsluumhverfi
  • Hæfni til að tengja saman rekstur, viðhald, gögn og árangursmælikvarða til að styðja við ákvarðanatöku
  • Sterkri leiðtogahæfni og reynslu af því að byggja upp teymi
  • Góðri greiningarhæfni og áhuga á gagnadrifinni ákvarðanatöku
  • Reynslu af umbótavinnu, áætlanagerð og verkefnastýringu
  • Þekkingu á skýrslu- og greiningartólum, svo sem Power BI, Tableau eða sambærilegum lausnum
  • Hæfni til að miðla upplýsingum skýrt og vinna þvert á ólík teymi
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.

Auglýsing birt5. október 2026
Umsóknarfrestur20. október 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Nesjavallavirkjun 170925, 801 Selfoss
Hellisheiðarvirkjun
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Stefnumótun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar