
Fjármálasérfræðingur
BYKO leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í fjármálum sem vill vera hluti af sterku fjármálateymi og vinna að fjölbreyttum verkefnum sem snerta daglegan rekstur félagsins. Starfið spannar breitt svið fjármála, allt frá afstemmingum og uppgjörsvinnu yfir í greiðslur, virðisaukaskatt, efnahagsreikning og önnur verkefni sem tryggja traustan og skilvirkan fjármálarekstur.
Hér er á ferðinni spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur gott vald á tölum, nýtur þess að hafa yfirsýn og vill taka ábyrgð í kraftmiklu og faglegu starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afstemmingar við birgja, kröfuhafa og banka.
- Bókun og afstemming greiðslna, innheimtu og sjóðstreymis.
- Afstemmingar milli fjárhagskerfa, undirkerfa og greiðslumiðla.
- Undirbúningur og skil virðisaukaskatts.
- Þátttaka í mánaðarmótum, uppgjörsvinnu og gengisuppreikningi.
- Verkefni og afstemmingar tengdar efnahagsreikningi.
- Umsjón með staðfestinga- og greiðslubókum.
- Samþykktir, kerfisstillingar og tryggingamál.
- Leiðréttingar, eftirfylgni og önnur fjölbreytt verkefni á fjármálasviði.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskiptafræði, fjármála, bókhalds eða sambærilegra greina.
- Reynsla af bókhaldi og/eða fjármálum.
- Góð Excel-kunnátta.
- Þekking á Microsoft Dynamics AX 2012 er kostur.
- Nákvæmni, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð.
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
BYKO er eitt þekktasta fyrirtæki landsins á sviði byggingarvara og lausna fyrir heimilið og hefur um árabil verið traustur samstarfsaðili bæði einstaklinga og fagfólks. Fyrirtækið býður fjölbreytt vöruúrval, sterka þjónustu og víðtæka þekkingu með það að markmiði að gera viðskiptavinum auðveldara að koma hugmyndum og verkefnum í framkvæmd.
Hjá BYKO starfar öflugur hópur fólks með fjölbreytta reynslu og þekkingu þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, samstarf og góða þjónustu. Fyrirtækið leggur metnað í að þróast í takt við þarfir viðskiptavina og markaðarins og skapa umhverfi þar sem frumkvæði og góðar hugmyndir fá að njóta sín.
BYKO er kraftmikill og metnaðarfullur vinnustaður þar sem starfsfólk fær tækifæri til að taka ábyrgð, hafa áhrif og þróast áfram í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 18. október nk.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Nánari upplýsingar veita Bjarki Pétursson ([email protected]) og Jensína K. Böðvarsdóttir, ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska










