Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (LRH) leitar eftir drífandi og metnaðarfullum aðilum í tvær stöður þjónustufulltrúa hjá embættinu. Önnur staðan tilheyrir sektarþjónustu og hin ritarahópi ákærusviðs. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt störf í þjónustudeild sem heyrir undir stjórnsýslu- og þjónustusvið embættisins.

Þjónustudeild sinnir stoð- og þjónustuhlutverkum fyrir bæði almenning og aðra hluta lögreglu. Deildin starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Deildin hefur nýlega flutt í nýtt sameinað rými sem hefur skapað líflegt vinnuumhverfi þar sem teymisandi er í forgrunni. Jafnframt er verið að innleiða nýtt þjónustukerfi og kortleggja þjónustuferla með einföldun og skilvirkni að leiðarljósi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 450 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fjölbreytt verkefni tengdum þjónustu við innri og ytri aðila. Upplýsingamiðlun og ráðgjöf, símsvörun, móttaka erinda, skráningar og miðlun upplýsinga innan og utan embættisins. Ritun, ljósritun, flokkun, afhending og frágangur mála. 
  • Skráning og flokkun mála í þjónustukerfi og önnur kerfi embættisins.
  • Upplýsingamiðlun og leiðbeiningar til borgara um stöðu mála og næstu skref.
  • Eftirfylgni við erindi og samskipti við kærendur til að tryggja góða þjónustuupplifun.
  • Þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum tengdum þjónustuferlum og stafrænni þróun deildarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af þjónustu-, móttöku- eða sambærilegu starfi er kostur.
  • Reynsla af umbótavinnu er kostur. 
  • Reynsla af beiðna- eða þjónustukerfum (s.s. Zendesk, Salesforce eða sambærilegum) er kostur.
  • Þekking á starfsemi lögreglu og/eða opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund.
  • Mikið frumkvæði, sveigjanleiki og gott álagsþol.
  • Skipulögð, vönduð og nákvæm vinnubrögð.
  • Góð almenn tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.

Auglýsing birt1. október 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Laugavegur 166, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar